Öldumælingaduflið við Grindavíkurhöfn slitnaði upp 5 desember. Miklar tafir hafa orðið á því að koma út nýju öldudufli vegna ýmissa aðstæðna, en fyrir jól var nýja ölduduflið komið um borð í Þór, en því miður þurfti varðskipið frá að hverfa vegna aðkallandi björgunarverkefna. Eftir björgunarverkefnið þurfti varðskipið að fara í slipp. En nú er ölduduflið komið aftur um borð í varðskipið Þór og vonandi verður því duflið fljótlega komið út aftur á sinn stað.