Seljabót 2a, 240 Grindavík.
ghofn@grindavik.is
Hafnarverðir/bakvakt: 426 8046
Hafnarstjóri: 660 7305 sigurdura@grindavik.is
Hafnarvog: 426 8046
Samskiptabylgja VHF er á rás 14.
Opnunartímar:
Virkir dagar:
Á virkum dögum er vakt frá kl 08:00 - 20:00.
Helgar:
Um helgar er einn maður á vakt frá kl 10:00 -16:00 og á bakvakt til kl 20:00.
Þeir sem óska eftir þjónustu utan venjulegs vaktatíma verða að biðja um hana fyrir kl 20:00 en um helgar fyrir kl. 16:00 í síma 426 8046.
Hafnsaga:
Byggir á lögum nr. 41/2003 um vaktstöð siglinga. Þar er m.a. kveðið á um hafnsögu og leiðsögu skipa, skyldur leiðsögumanns, umboðsmanns skips o.fl.
Myndbönd:
Myndband 1: Vörður siglir inn í Grindavíkurhöfn
Forklift instructions for harbour scale
Polish instructions for the scale
Starfsemi er samkvæmt samþykkt hafnarstjórnar frá 2. desember 2010, skv. hafnalögum nr. 61/2003 og 37. gr. reglugerðar um hafnamál nr. 326/2004 og staðfest af bæjarstjórn 15. desember 2010.
Vigtun:
Byggir á reglugerð nr. 224/2006 um vigtun og skráningu sjávarafla. Þar segir m.a. að allur afli skal veginn á hafnarvog í löndunarhöfn þegar við löndun aflans og skal vigtun afla vera lokið innan tveggja klukkustunda frá því að löndun lauk. Skal við vigtunina nota löggilta vog í eigu viðkomandi hafnar. Vigtun skal framkvæmd af starfsmanni hafnar sem hlotið hefur til þess löggildingu.
Almenn hafnarþjónusta:
Grindavíkurhöfn veitir almenna hafnarþjónustu eins og hafnsögu, vigtun, afgreiðslu á ferskvatni, rafmagni, og sorphirðu. Starfsemi er samkvæmt samþykkt hafnarstjórnar frá 2. desember 2010, skv. hafnalögum nr. 61/2003 og 37. gr. reglugerðar um hafnamál nr. 326/2004 og staðfest af bæjarstjórn 15. desember 2010. Starfsemin tekur til afgreiðslu og þjónustu skipa, afgreiðslu á vörum, ökutækjum og farþegum og við löndun á fiski.
Nafn | Staða | Sími | Netfang |
---|---|---|---|
Valgerður Söring Valmundsdóttir | Hafnarvörður | 4268046 | valgerdurs@grindavik.is |
Þröstur Magnússon | Hafnarvörður | 4268046 | throstur@grindavik.is |
Arnfinnur Antonsson | Hafnarvörður | 4268046 | addi@grindavik.is |
Sigurður A Kristmundsson | Hafnarstjóri | 4268046 | sigurdura@grindavik.is |