Hvað og hvar er Virkjun?
Virkjun mannauðs á Reykjanesi hóf starfsemi sína 15. janúar 2009. Í Virkjun er verið að byggja upp starfsemi fyrir íbúa á Reykjanesi sem leitar nýrra tækifæra í atvinnu eða námi. Þá er Virkjun ekki síður samkomustaður fólks sem vill nýta það áfall sem atvinnuleysi er hverjum og einum til að búa sig undir ný tækifæri í atvinnu með námi, námskeiðum eða mannbætandi tómstundum og menningarstarfsemi sem einnig er í boði í Virkjun.
Sveitarfélögin á Reykjanesi, verkalýðsfélög og fyrirtæki, menntastofnanir eins og Keilir, Fjölbrautaskóli Suðurnesja og Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum hafa tekið höndum saman og bjóða upp á fjölbreytt nám fyrir þá sem leita nýrra tækifæra. Áhersla er lögð á hlýjar móttökur og skipulagða starfssemi, þar sem litið er á erfiða stöðu sem tækifæri. Leitað er eftir vinnuframlagi frá þeim stofnunum sem að standa, en ekki síður sjálboðliðastarfi. Almenningi er boðið að heimsækja Virkjun á daginn og fá þar fjölbreytilega þjónustu; sálfræðiaðstoð, fjármálaráðgjöf, náms og starfsráðgjöf o.s.frv. Vinnuaðstaða er fyrir ýmiskonar frumkvöðlastarfsemi og aðstoð við stofnun sprotafyrirtækja, aðstaða fyrir námstengd verkefni, fyrirlestrar, kynningar, náms- og starfsráðgjöf, persónuleg ráðgjöf og tómstundaverkefni, þátttakendum að kostnaðarlausu.
Í boði er heimilislegur hádegisverður og dagskrá alla daga þannig að hver og einn á að geta fundið verkefni við hæfi. Samhliða persónulegri ráðgjöf geta umbjóðendur Virkjunar sótt fyrirlestra, íþróttaæfingar, stofnað fyrirtæki o.s.frv. Kappkostað er að hafa ekki einungis starfssemi fyrir atvinnulausa á svæðinu heldur fer þar einnig fram önnur starfssemi, s.s. kennsla á vegum Keilis, Fjölbrautaskólans og Miðstöðvar símenntunar, nýsprotastarfssemi, lærdómsaðstaða er fyrir nemendur o.s.frv., þannig að "stimpillinn" atvinnuleysi verði ekki um of tengdur Virkjun.
Klárlega er þetta verkefni nýmæli til að takast á við atvinnuleysi og líta í raun á það sem tækifæri til sjálfseflingar, menntunar og að gera einstaklinginn hæfari til frekari þátttöku í atvinnulífinu þegar ný tækifæri skapst á vinnumarkaði.
Virkjun hefur yfir að ráða tæplega 1.600 fermetra húsnæði að Flugvallarbraut 740, Vallarheiði, Reykjanesbæ, sem Kadeco (Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar) leggur verkefninu til. Húsið býður upp á mjög mikla notkunarmöguleika þar sem mikið af rýmum af öllum stærðum og gerðum er fyrir hendi.
Virkjun er opin alla virka daga frá 09.00 til 16.00.
Hörður Guðbrandsson (S)
Sigmar Eðvarðsson (D)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Garðar Páll Vignisson (V)
Björn Haraldsson (V)
Petrína Baldursdóttir (B)
Gunnar Már Gunnarsson (B)






