Vetrastarfið í félagsmiðstöðinni Þrumunni verður öflugt í vetur en hin landsfræga söngkona Íris Kristinsdóttir, oft kennd við hljómsveitina Buttercup, hefur verið ráðin leiðbeinandi í vetur.
Íris útskrifaðist úr leiklistardeild Kvikmyndaskóla Íslands 2010 og hefur fengist við ýmislegt í tónlist, leiklist og kvikmyndagerð.
Nánar verður rætt við Íris í Járngerði sem kemur út í september.
Opnunartími Þrumunnar er sem hér segir: Opið fyrir 8. - 10. bekk: Mánudaga og miðvikudaga frá 20:00 - 22:00 og föstudaga frá 19:30 - 22:00 Starfsemi fyrir 5. - 7. bekk verður auglýst sérstaklega í skólanum.