Ţorbjörn hf. fékk menningarverđlaunin 2012 fyrir minja- og myndasýninguna

  • Fréttir
  • 17. mars 2012

Þorbjörn hf. fékk menningarverðlaun Grindavíkurbæjar 2012 við upphaf menningarviku í Grindavíkurkirkju í dag, fyrir minja- og myndasýningu sína. Gunnar Tómasson, framkvæmdastjóri og einn eigenda fyrirtækisins, veitti viðurkenningunni móttöku en hann stóð fyrir því að árið 2010 setti fyrirtækið upp sýningu á gömlum munum og myndum sem safnast hafa upp hjá fyrirtækinu í gegnum árin, bæði tengdum fiskveiðum og fiskvinnslu. 

Óskað var eftir tilnefningum frá bæjarbúum til menningarverðlaunanna. Í umsögn frístunda- og menningarnefndar Grindavíkur kemur fram að mikil metnaður hefur verið lagður í þessa sýningu og þetta framtak fyrirtækisins afar lofsvert til að varðveita þá menningu sem tengist sjávarútveginum í Grindavík. Á flettiskjám er sýndar gamlar myndir frá starfsemi fyrirtækisins. Sýningin eru í níu gluggum, sem innréttaðir eru sem sýningargluggar. Í gömlu fiskmótttökulúgunum við gamla salthúsið, sem nú hýsir Veiðafæraþjónustuna ehf. Við Ægisgötu (Garðvegs megin) eru átta gluggar og einn gluggi er svo að Hafnargötu 12, þar sem skrifstofa fyrirtækisins er.

Jafnframt hefur fyrirtækið sett töluverða upphæð og vinnu í að skanna inn myndasafn Ólafs Rúnars Þorvarðarsonar fyrrum kennara í Grindavík. Það framtak er sömuleiðis lofsvert og mun halda á lofti sögu samfélagsins í Grindavík, sérstaklega tengt sjávarútveginum, en Ólafur var ansi duglegur að festa samfélagið í Grindavík á filmu og safn hans ómetanleg heimild um þá uppbyggingu sem Grindavík hefur gengið í gegnum á undanförnum áratugum. Fyrirhugað er að nokkrar af þessum myndum muni prýða grindverk fyrirtækisins sem liggur með fram Bakkalág og er stefnt að því að það verði tilbúið fyrir sumarið.

Þessi stefna fyrirtækisins að leggja metnað í að varðveita muni og myndir og hafa það sýnilegt gestum og gangandi er til fyrirmyndar og vonandi til eftirbreytni fyrir önnur fyrirtæki í Grindavík. 

Menningarvika Grindavíkur stendur frá 17.-25. mars. Tolli, Valgeir Guðjóns, Gospekór Fíladelfíu, Gunni Þórðar, Margrét Eir, Helga Bryndís og Arnþór, Friðarliljurnar og The Backstabbing Beatles, bara til að nefna nokkra af þeim fjölmörgu listamönnum sem koma fram í menningarviku Grindavíkurbæjar. Tónleikar, leiksýningar, myndlistasýningar, ljósmyndasýningar, fyrirlestrar og skemmtanir verða í fyrirrúmi. Tónlistarskólinn, bókasafnið, grunnskólinn, Kvikan, kaffihúsin og fleiri aðilar leggja allir sitt af mörkum til eflingar menningar í Grindavík.  Hér er um met aflabrögð að ræða.

Mynd: Róbert Ragnarsson bæjarstjóri, Gunnar Tómasson framkvæmdastjóri hjá Þorbirni hf. og Kristinn J. Reimarsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir