Halldóra K. Magnúsdóttir ráđin skólastjóri
Halldóra K. Magnúsdóttir ráđin skólastjóri

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum í dag að ráða Halldóru K. Magnúsdóttur í starf skólastjóra Grunnskóla Grindavíkur og felur sviðsstjóra fræðslu- og félagsþjónustusviðs að ganga frá ráðningarsamningi.

Staða skólastjóra Grunnskóla Grindavíkur var fyrst auglýst 14. janúar sl. með umsóknarfresti til 13. febrúar sl. Ellefu umsóknir bárust um stöðuna. 

Leitað var til Ingvars Sigurgeirssonar prófessors við Kennaradeild Háskóla Íslands um aðstoð við að leggja mat á hæfni umsækjenda. Eftir mat á umsóknum og viðræður við meðmælendur varð það niðurstaðan að boða sjö umsækjendur í viðtöl. Viðstödd viðtölin voru bæjarstjóri, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og allir kjörnir fulltrúar í fræðslunefnd.

Við mat á umsóknum var stuðst við gátlista þar sem m.a. er litið til menntunar umsækjenda, framhaldsmenntunar á sviði stjórnunar, annars framhaldsnáms, annars náms á háskólastigi, námsárangurs, námskeiða og endurmenntunar, starfsreynslu innan og utan skólakerfisins, kennslu- og stjórnunarreynslu, reynslu af skólaþróun og reynslu af eigin námskeiðahaldi. Aflað var upplýsinga um ritfærni og íslenskukunnáttu, þekkingu og færni í tölvu- og upplýsingatækni og kunnáttu í erlendum málum. Þá var leitast við að leggja mat á umsækjendur út frá viðtölum við umsagnaraðila með tilliti til annarra færniþátta. Skýrslan Mat á hæfni umsækjenda um stöðu skólastjóra Grunnskóla Grindavíkur liggur fyrir fundinum.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs telur að þegar litið er til allra þátta auglýsingar um menntun og faglega hæfni sé Halldóra K. Magnúsdóttir hæfasti umsækjandinn og leggur til að henni verði boðið starfið.
Fræðslunefnd styður tillögu sviðsstjóra og leggur til við bæjarráð að hún verði samþykkt.

Halldóra starfar nú sem aðstoðarskólameistari í Akurskóla en tekur til starfa 1. maí nk. sem skólastjóri Grunnskóla Grindavíkur.

Nýlegar fréttir

mán. 21. maí 2012    Bacalaomót fótbolta í tengslum viđ Sjóarann síkáta
mán. 21. maí 2012    Sumarblómasalan hefst í dag
mán. 21. maí 2012    Niđursođin ţorskalifur er herramannsmatur
mán. 21. maí 2012    Grindavík tekur á móti Stjörnunni
mán. 21. maí 2012    Vorferđ heldri borgara í Bláa lóniđ
sun. 20. maí 2012    Námsmats- og prófadagar
sun. 20. maí 2012    Sjóarinn síkáti haldinn um sjómannadagshelgina 1.-3. júní međ pompi og pragt
sun. 20. maí 2012    Lagiđ um Sjóarann síkáta
sun. 20. maí 2012    Tap í fyrsta leik
fös. 18. maí 2012    Ţátttaka í árshátíđarleikritum skólans varđ kveikjan ađ leiklistaráhuganum
lau. 19. maí 2012    Fyrsti leikurinn hjá stelpunum í dag
lau. 19. maí 2012    Fundur í Grćna hverfinu nćsta fimmtudag
fös. 18. maí 2012    Sjóarinn síkáti - Stórtónleikar međ Valdimar í íţróttahúsinu á sunnudagskvöldinu
fös. 18. maí 2012    Gerum ţađ besta úr komandi ferđasumri á Suđurnesjum
fös. 18. maí 2012    Vinabćjarbođ frá Penistone til Grindvíkinga
fös. 18. maí 2012    Fundur í Bláa hverfinu á Kantinum á ţriđjudaginn
fös. 18. maí 2012    Pétur yfirmađur Vinnuskólans
fös. 18. maí 2012    Suđurnesjaslagur í 32ja liđa úrslitum bikarkeppninniar
fös. 18. maí 2012    Leikjanámskeiđ á vegum Grindavíkurbćjar sumariđ 2012
fös. 18. maí 2012    Upplýsingar um tómstundastarf í Grindavík í sumar
fös. 18. maí 2012    Háskólalestin í Grindavík á laugardaginn - Sprengjugengiđ í heimsókn
fös. 18. maí 2012    Skemmtilegt hestamannamót hjá Brimfaxa
fim. 17. maí 2012    Háskólinn í Grunnskólanum
fim. 17. maí 2012    Vistaskipti 3. bekkjar
fim. 17. maí 2012    Danskur ratleikur í 7. og 8. bekkjum