Ingibjörg Yrsa: Erfitt að velja á milli
Ingibjörg Yrsa: Erfitt að velja á milli

„Ég byrjaði að æfa báðar þessar íþróttir um 6 ára aldur. Ég æfði svo sund fram í 5. bekk en það var ekki nógu mikill tími fyrir þetta allt saman þannig að fótboltinn og körfuboltinn urðu bara að duga," segir Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir við Víkurfréttir sem var á dögunum valin íþróttakona Grindavíkur en hún er gríðarlegt efni bæði í fótboltanum og körfuboltanum og á að baki unglingalandsleiki í báðum íþróttum.

 Ingibjörg Yrsa var lykilmaður bæði í körfubolta- og knattspyrnuliðum Grindavíkur í ár og Ingibjörg fékk 81 stig af 100 mögulegum og Óskar Pétursson markvörður fékk 79 stig, en valið er kynjaskipt.

Yrsa sem er 17 ára stundar nám í Verzlunarskólanum og hún er á fullu með meistaraflokki Grindavíkur sem trónir á toppi 1. deildarinnar í körfuboltanum um þessar mundir. Fótboltanum er aðeins sparkað til hliðar á veturna en Yrsa segir að hún hafi aðeins þurft að slaka á eftir að hún hóf nám í framhaldsskóla. Fyrir tímabilið núna drógu Grindvíkingar sig úr keppni í úrvalsdeild kvenna í körfuboltanum og ekki stóð til að hafa meistaraflokk. Á endanum fór svo að Grindvíkingar tefldu fram ungu liði sem er, eins og áður segir, á góðu róli í 1. deild. „Ég var ekkert voðalega sátt við það í fyrstu að við myndum ekki vera með í efstu deild, en þetta tímabil er búið að vera mjög skemmtilegt og hópurinn er alveg frábær," segir hún og er greinilega sátt við sitt núna og stefnan er að hennar sögn tekin beint upp í úrvalsdeildina.

Þegar hún er innt eftir því hvort ekki sé kominn tími til að velja á milli íþróttanna þá svarar hún að bragði: „Jú það fer alveg að koma tími á það, en það er að reynast erfiðari ákvörðun en ég gerði mér grein fyrir," en henni finnst ágætt að vera í fótboltanum á sumrin og körfunni á veturna. Báðar þessar greinar eru þó stundaðar meira árið um kring heldur tíðkaðist á árum áður, sérstaklega með komu innanhússhalla í fótboltanum. „Ég held að það væri skynsamlegt að fara að velja, og ef ég vissi hvorri íþróttinni ég hefði meira gaman af þá væri ég búin að því," segir hún og hlær. Hún telur að hún sé aðeins betri í fótboltanum og hana langar að komast að í háskóla í Bandaríkjunum en margir liðsfélagar hennar í meistaraflokki Grindavíkur hafa farið þá leiðina og líkað lífið þar vestra.

Hún segir vera góðan skilning á milli knattspyrnu- og körfuknattleiksdeildanna í Grindavík og engin togstreita þar á milli. „Fótboltaþjálfarinn minn skilur þetta alveg. Hann veit að ég mæti þegar ég kemst en ég mæti 1-2 í viku og er svo með í leikjunum," segir Yrsa sem leikur ýmist á miðju vallarins eða í vörninni. Hún fór í sumar með U-17 ára liði Íslands og keppti í undankeppni EM, auk þess hefur hún verið viðloðin U-19 ára lið Íslands.

Viðtalið í heild sinni má lesa hér.

Mynd: Víkurfréttir.

Nýlegar fréttir

mið. 22. feb. 2012    Halldóra K. Magnúsdóttir ráðin skólastjóri
mið. 22. feb. 2012    Upplýsingar óskast um skemmdarvarga
mið. 22. feb. 2012    Metnaðarfullir búningar á öskudaginn!
mið. 22. feb. 2012    Þorrablót í Hópsskóla
mið. 22. feb. 2012    Sögðu sögur af afa Bjarna Ben
mið. 22. feb. 2012    Allt verður að gulli í Greip
mið. 22. feb. 2012    Að loknum lestrarspretti
mið. 22. feb. 2012    Nýtt sundnámskeið UMFG
mið. 22. feb. 2012    Fiskisalt endurnýtt í hálkuvarnir
þri. 21. feb. 2012    Yfirlýsing aðalstjórnar UMFG vegna íþróttamannvirkja
þri. 21. feb. 2012    Öskudagsball í Þrumunni
þri. 21. feb. 2012    Skólablöðin komin á vefsíðuna!
þri. 21. feb. 2012    Listaverk nemenda í Miðgarði
þri. 21. feb. 2012    Öskudagur á morgun í skólanum!
þri. 21. feb. 2012    Góðverkavika á Króki
þri. 21. feb. 2012    Friðargangan vekur athygli Friðarsamtaka bæjarstjóra
mán. 20. feb. 2012    Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins milliliðalaust á Bryggjunni
þri. 21. feb. 2012    Vita- og vísnahátíð í Garðinum
mán. 20. feb. 2012    Stærðfræðidagur á Laut
mán. 20. feb. 2012    Golfæfingar í Hópinu á sunnudögum
mán. 20. feb. 2012    Kalda vatnið tekið af Austurhópi
mán. 20. feb. 2012    Lúllu löggubangsi heimsótti Laut
mán. 20. feb. 2012    Athyglisverð tilraun í tannverndarviku á Laut
mán. 20. feb. 2012    Skemmtilegt tannverndarverkefni
mán. 20. feb. 2012    Martak - Þróa lausnir fyrir matvælaiðnaðinn