Rigningartíðin sem er hafin og verður hugsanlega næstu daga þýðir að fólk þarf nú að undirbúa sig fyrir leysingarnar. Tryggingafyrirtækið Sjóvá hefur sent frá sér leiðbeiningar til fólks hvernig best sé að bera sig að til þess að koma í veg fyrir vatnstjón.
„Flest tjón við þessar aðstæður má rekja til þess að ekki var mokað frá niðurföllum, snjór hreinsaður af þökum og svölum. Reynslan sýnir að allt of mörg vatnstjón hefði verið hægt að fyrirbyggja," segir ennfremur.
Þetta getur þú gert:
Heimili:
Vertu viss um að vatn eigi greiða leið að niðurföllum
Brjótið klaka við niðurföll og mokið snjó frá niðurföllum
Hreinsaðu sand og lauf frá niðurföllum
Hreinsaðu snjó af svölum, en gættu þess að hvorki bílar né fólk sé fyrir neðan
Losaðu klaka og grýlukerti úr þakrennum og af þakskeggi
Í við niðurgang í kjallara og við glugga og veggi á neðri hæð gæti þurft að moka snjó frá.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
