HH. Smíði óskaði eftir því að deiliskipulagi við Miðhóp 1-9 í Grindavík verði breytt. Í núgildandi deiliskipulagi er gert ráð fyrir 5 íbúða raðhúsi á lóðinni, en HH smíði vill færa bindandi byggingalínu húsanna.
Skipulags- og umhverfisnefnd telur að breytingin sé óveruleg og leggur til að hún verði samþykkt. Nefndin leggur til að breytingin verði grenndarkynnt fyrir íbúum Austurhóps skv. 2.mgr. 44. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn samþykkir að breytingin verði grenndarkynnt fyrir íbúum Austurhóps skv. 2.mgr. 44. greinar skipulagslaga nr. 123/2010, en frestar afgreiðslu skipulagstillögunnar þar til að grenndarkynning hefur farið fram. Bæjarstjórn óskar jafnframt frekari upplýsinga, svo sem um hæðarkvóta götu og lóða og felur bæjarráði heimild til fullnaðarafgreiðslu þegar öll gögn eru fram komin.
Samþykkt samhljóða.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
