Góð heimsókn frá Króki
Skólahópurinn á Heilsuleikskólanum Króki heimsótti bæjarskrifstofurnar í vikunni. Róbert Ragnarsson bæjarstjóri tók á móti krökkunum sem fóru í skoðunarferð um bæjarskrifstofurnar, heilsuðu upp á starfsfólkið og var svo boðið í smá veislu.
Krakkarnir fengu m.a. að flytja ræðu í ræðupúlti bæjarstjórnar þar sem þau sögðu m.a. frá því hvað þeim finnst skemmtilegast að gera og hvað þau myndu gera ef þau væru bæjarstjóri og kom þar margt skemmtilegt fram.
Að lokum sungu krakkarnir tvö lög í þakklætisskyni og þau voru svo leyst út með gjöfum. Eftir var tekið hvað þetta var kurteis og góður skólahópur og leikskólanum til sóma.



Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
