415. fundur Bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 25. janúar 2012 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Guðmundur L. Pálsson (GLP), Páll Jóhann Pálsson (PJP), Kristín María Birgisdóttir (KMB), Dagbjartur Willardsson (DW), Páll Valur Björnsson (PVB), Hilmar E Helgason (HEH), Páll Gíslason (PG), Róbert Ragnarsson og Jón Þórisson.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslu
Dagskrá:
1. 1002021 - Framtíðaruppbygging íþróttamannvirkja.
Til máls tóku: Páll Jóhann, Guðmundur, Kristín María, Páll Valur, Dagbjartur og bæjarstjóri.
Lokaskýrsla vinnuhóps vegna framtíðaruppbyggingu íþróttamannvirkja í Grindavík er lögð fram.
Í vinnhópnum sátu fulltrúar allra lista í bæjarstjórn Grindavíkur auk fulltrúa UMFG. Haldinn var kynningarfundur með öllum deildum UMFG og óskað eftir ábendingum og athugasemdum. Vinnuhópurinn hefur brugðist við ábendingum eftir föngum.
Tillögur nefndarinnar eru byggðar á þeim kröfum og forsendum sem bæjarstjórn setti vinnuhópnum á fundi sínum þann 28. september síðastliðinn.
Þær voru eftirfarandi:
Að sameina inngang og afgreiðslu íþróttahúss og sundlaugar með það markmiði að nýta starfsfólk sem best og að inngangurinn sé skemmtilegur og aðlaðandi fyrir gesti og gangandi.
Að íþróttahúsið geti nýst sem veislusalur fyrir 350-400 gesti á snyrtilegan og einfaldan hátt
Að körfuknattleiksvöllur verði löglegur.
Að bæta æfingaaðstöðu fyrir júdódeild og taekwondo.
Að bæta æfingaaðstöðu og áhaldageymslu fyrir fimleikadeild.
Að almenningsíþróttir fái að njóta sín.
Að húsnæðið rúmi sameiginlega aðstöðu fyrir deildir UMFG til funda og skrifstofuhalds.
Að bygginging sé í samræmi við aðrar byggingar á reitnum, látlaus og að fermetrar nýtist sem best.
Vinnuhópurinn leggur til að verkinu verði skipt í fjóra áfanga.
Forsendur miða við endurskipulag á eldra húsnæði með breyttri nýtingu auk nýbygginga. Byggingaráformin á íþróttasvæðinu sem hér eru kynnt má skipta niður í a.m.k. 4 áfanga, en þeir eru:
1. Stækkun íþróttahúss, þar sem byggt er við salinn til suðurs.
2. "Íþróttamiðstöð Grindavíkur" viðbygging við íþróttahús, með tengigöngum að sundlaugarbyggingu að norðan og að búningsklefum knattspyrnu að sunnan.
3. Innanhússbreytingar íþróttahúss þar sem fyrirkomulag á aukarýmum er breytt.
4. Innanhússbreytingar sundlaugarbyggingar þar sem innréttuð er líkamsræktaraðstaða í stað núverandi aðstöðu.
Þrjú atriði vega þungt í hönnun aðstöðunnar.
Aðgengismál. Aðgengi allra skal vera tryggt að allri starfsemi bygginganna og tekið verði tillit til ólíkra tegunda fötlunar við útfærslu.
Vinnuvistfræði og öryggismál. Íþróttahús er vinnustaður ólíkra hópa og því mikilvægt að taka sérstakt tillit til þeirra í hönnunarvinnunni.
Veðurfarsaðlögun. Ný mannvirki verði hönnuð með sérstöku tilliti til skjólmyndunar umhverfis þau einkum við innganga.
Kostnaður
Heildarkostnaður er áætlaður 714.516.000 kr. fyrir samtals 2.004 m2 og endurbætur á núverandi húsnæði.
Á fundi bæjarstjórnar þann 22. desember var umsögn PricewaterhouseCoopers (PWC) um áhrif fjárfestinganna á fjárhagsafkomu sveitarsjóðs lögð fram. Umsögnin var unnið á grunni 65. gr. laga nr. 45/1998. Meginniðurstaða PWC er heildaráhrif fjárfestingarinnar á sjóðsstreymi sveitarfélagsins verði á bilinu 27,5 - 31 mkr. á ári fyrstu 10 árin en að liðnum 10 árum ættu þau að verða um 37,6 mkr. Þessu til viðbótar aukast afskriftir varanlegra rekstrarfjármuna sem nemur 2,5% af fjárfestingunni en það samsvarar tæplega 17 mkr. á ári. Þetta leiðir til þess að áhrif fjárfestingar á rekstrareikning sveitarfélagsins gæti numið um 44 - 48 mkr. á ári fyrstu 10 árin.
Bæjarstjórn þakkar vinnuhópnum vel unnin störf.
Í fjárhagsáætlun ársins 2012 og þriggja ára rammaáætlun fyrir árin 2013-2015 er gert ráð fyrir fjármagni til framkvæmdanna og þess rekstarkostnaðar sem til fellur á þessum tíma í samræmi við þá áfangaskiptingu sem vinnuhópurinn leggur til.
Bæjarstjórn samþykkir tillögur vinnuhópsins eins og þær liggja fyrir í skýrslunni og að hefja vinnu við deiliskipulag svæðisins og hönnun mannvirkjanna.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að hefjast handa við 1. áfanga verkefnisins og felur bæjarráði að skipa byggingarnefnd.
Bókun
Þessi teikning sem hér liggur frammi til afgreiðslu, um uppbyggingu á íþróttasvæðinu er mjög góð og kemur öllum íþróttagreinunum til góða, sérstaklega fyrir inni- og almenningsíþróttir.
Þegar þessari framkvæmd er lokið verður að huga að áframhaldi á uppbyggingu við Hópið.
Fulltrúi D-lista.
2. 1112001 - Þriggja ára áætlun 2013-2015
Til máls tóku: Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslu, Guðmundur, bæjarstjóri, Páll Jóhann og Páll Valur, Kristín María
Þriggja ára rammaáætlun 2013- 2015 er lögð fram til síðari umræðu.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslu fór yfir helstu forsendur og niðurstöður áætlunarinnar.
Rekstrarniðurstaða í samanteknum reikningsskilum fyrir árin 2013 – 2015 er eftirfarandi
Árið 2013 36,1 milljón kr.
Árið 2014 55,5 milljónir kr.
Árið 2015 45,8 milljónir kr.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdir áranna 2013 – 2015 verði eftirfarandi:
Árið 2013 433,0 milljónir kr.
Árið 2014 351,5 milljónir kr.
Árið 2015 187,5 milljónir kr.
Í áætluninni er gert ráð fyrir að ganga þurfi á handbært fé til framkvæmdanna og er handbært fé áætlað í árslok 2015 1.072,0 milljónir króna og mun það því lækka um 95 milljónir á þessu þriggja ára tímabili.
í árslok 2015 er gert ráð fyrir að heildareignir verði 7.296,8 milljónir króna og skuldir og skuldbindingar samtals 1.394,9 milljónir króna. Eigið fé verður því 5.901,9 milljónir kr.
Gangi áætlunin eftir mun Grindavíkurbær ná fjárhagslegum markmiðum sínum árið 2013 eins þau voru samþykkt á 401. fundi bæjarstjórnar.
Í markmiðunum var lagt upp með að EBIDA yrði 15% á árinu 2014, en samkvæmt áætluninni verður hlutfallið um 14,5%.
Bæjarstjóri leggur til að markmiðin verði endurskoðuð í ljósi þess að nánast öll lán bæjarsjóðs Grindavíkur og stofnana hans eru uppgreidd og að sett verði markmið fyrir árið 2015. Tillögunni er vísað til umræðu í bæjarráði.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða þriggja ára áætlun 2013-2015
3. 1111094 - Starfsmannastefna Grindavíkurbæjar
Tillaga um breytingu á ákvæði um heilsueflingu í starfsmannastefnu Grindavíkurbæjar lögð fram til staðfestingar.
Heilsuefling
Grindavíkurbær styrkir þá starfsmenn bæjarins sem vilja stunda reglubundna líkamsrækt með fjárframlagi á móti árgjaldi eða námskeiðsgjaldi að hámarki 20.000 krónur á ári.
Starfsmenn í hlutastarfi fá framlag miðað við hlutfall starfs.
Greiðsla styrkja fer fram hjá launafulltrúa Grindavíkurbæjar gegn framvísun kvittunar á greiðslu. Kvittanir sem berast fyrir 20. hvers mánaðar greiðst um næstu mánaðarmót.
Tillagan er samþykkt samhljóða
4. 1112012 - Gjaldskrá þjónustugjalda 2012.
Bæjarráð hefur samþykkt að leiðrétta prentvillu í útgefinni gjaldskrá fyrir leikskóla varðandi gjald milli kl. 16 og 17. Rétt gjald fyrir tímann milli kl. 16 og 17 er kr. 7.481.
Bæjarstjórn staðfestir breytinguna.
5. 1201060 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2012. Starfsmannamál.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki að fjárhæð 1.000.000 kr. við fjárhagsáætlun ársins 2012 vegna vinnu við gerð forvarnar- og viðbragðsáætlun gegn einelti og tengdra verkefna. Útgjaldaaukanum verður mætt með lækkun á handbæru fé.
Samþykkt samhljóða
6. 1111104 - Breyting á varafulltrúa B-lista í fræðslunefnd
Guðmundur Grétar Karlsson verður nýr varamaður B lista í fræðslunefnd í stað Hilmars Helgasonar.
Samþykkt samhljóða
7. 1005028 - Samningur um kaup á landi og orkuauðlind í Svartsengi.
Til máls tók: Páll Jóhann
Undirritaður samningur milli Grindavíkurbæjar og HS orku lagður fram til staðfestingar.
Bæjarstjórn staðfestir samninginn.
8. 1109050 - Drög að samningi við HS orku hf um uppbyggingu Eldvarpavirkjunar.
Til máls tók: Guðmundur, Kristín María, Hilmar, bæjarstjóri, Páll Valur og Páll Jóhann
Undirritaður samningur milli Grindavíkurbæjar og HS orku lagður fram til staðfestingar.
Samkomulagið nær yfir jarðhitasvæðin í Eldvörpum, við Svartsengi og Arnarsetur og byggist á Auðlindastefnu Grindavíkurbæjar. Með samningnum skuldbindur HS Orka hf sig til þess, að veita iðnfyrirtækjum í Grindavík forgang að raforku a.m.k. 25 MW af þeim 50MW sem áætlað er að virkja megi á þessum jarðhitasvæðum.
Grindavíkurbær skuldbindur sig til að vinna með HS Orku hf. vegna framkvæmda og reksturs félagsins í lögsögu sveitarfélagsins og er áhersla lögð á að veita félaginu eins góða þjónustu í þessum efnum og Grindavíkurbæ er unnt.
Í samkomulaginu er líka fjallað um samstarf HS orku hf og Grindavíkurbæjar um ýmis sameiginleg hagsmunamál, svo sem Uppbyggingu og kynningu á iðnaðarsvæðum í Grindavík, Könnun, uppbyggingu og rekstri Eldfjallagarðs og auðlindahúss. Jafnframt er samkomulag um að koma á reglulegu samráði milli aðila varðandi uppbyggingu og rekstur virkjana í sveitarfélaginu. Til þess að tryggja slíkt samráð verði haldnir a.m.k. tveir sameiginlegir fundir árlega.
Bæjarstjórn staðfestir samninginn með 5 atkvæðum, Kristín María og Dagbjartur sitja hjá.
9. 1112030 - Tilboð í rekstur líkamsræktar í sundmiðstöð Grindavíkurbæjar.
Undirritaður leigusamningur milli Grindavíkurbæjar og Actic heilsuræktar lagður fram til staðfestingar.
Bæjarstjórn staðfestir samninginn.
10. 1110053 - Samningur vegna deiliskipulagsvinnu fyrir miðbæjarkjarna Grindavíkur
Til máls tók: Kristín María
Tillaga er lögð fram um frestun þessa liðar til næsta bæjarstjórnarfundar.
Samþykkt samhljóða
11. 1112025 - Breyting á deiliskipulagi við Bláa Lónið í Grindavík
Bláa Lónið ehf. óskar eftir breytingu á deiliskipulagi við Bláa Lónið í Grindavík sbr. uppdrætti og greinargerð dags. desember 2011 unnið af Basalt arkítektum.
Heilsulind Bláa Lónsins hefur verið starfrækt á núverandi stað frá 1999. Í deiliskipulagi fyrir þjónustureitinn frá 1996 var eftirfarandi starfsemi skilgreind:
baðstaður, meðferðarstöð og hótelbygging. Á lóð var skilgreint tjaldstæði við bílastæði gesta. Lækningalind (meðferðarstöð) er þegar byggð á aðliggjandi reit skv. deiliskipulagi frá 2002. Því er sú starfsemi ekki á nýju deiliskipulagi. Tjaldstæði er í Grindavíkurkaupstað og því ekki þörf á slíkri þjónustu á athafnasvæði Bláa Lónsins hf. Uppbygging hótels við Heilsulindina er fyrirhuguð á sama stað og deiliskipulagið frá 1996 kveður á um. Ný aðstaða fyrir heilsulindarþjónustu er fyrirhuguð sem skal tengjast hótelinu annars vegar og núverandi Heilsulind hins vegar. Niðurstaða ítarlegra kannana sýna að mikil þörf er fyrir þjónustuhús við bílastæði Heilsulindarinnar. Stór hluti gesta kemur í hópferðarbílum sem koma mislangt að og safnast saman á bílastæðunum áður en lengra er haldið. Húsið verður upplýsingamiðstöð ferðamanna fyrir Reykjanes, snyrtingar og töskugeymsla. S.l. tvö ár hefur töskugeymsla í einingahúsi úr timbri verið rekin á staðnum á bráðabirgða byggingarleyfi bæjaryfirvalda. Í deiliskipulagi er ný lóð innan reitsins skilgreind undir þessa þjónustu.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að skipulagið verði samþykkt til auglýsingar skv.1.mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Samþykkt samhljóða
12. 1201010 - Ósk um framkvæmdaleyfi, vegna niðurrennslislagnar í Skipsstígshrauni
HS-orka hf sækir um framkvæmdaleyfi að nýju til að leggja niðurrennslislögn frá orkuverinu í Svartsengi að niðurrennslisholum í Skipsstígshrauni. Grindavíkurbær hafði áður veitt leyfi fyrir framkvæmdinni en það er fallið úr gildi þar sem að framkvæmdin hófst ekki innan tilskilins tíma. Greinargerð vegna niðurrennslislagnarinnar er lögð fram unnin af VSÓ ráðgjöf dags. október 2011.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að framkvæmdaleyfið verði samþykkt skv. 1. mgr. 15. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða
13. 1201011 - Ósk um breytingu á deiliskipulagi Miðhóps 1-9 í Grindavík.
Til máls tóku: Kristín María, Páll Jóhann, bæjarstjóri og Guðmundur
HH. Smíði óskar eftir því að deiliskipulagi við Miðhóp 1-9 í Grindavík verði breytt. Í núgildandi deiliskipulagi er gert ráð fyrir 5 íbúða raðhúsi á lóðinni, en HH smíði vill færa bindandi byggingalínu húsanna.
Skipulags- og umhverfisnefnd telur að breytingin sé óveruleg og leggur til að hún verði samþykkt. Nefndin leggur til að breytingin verði grenndarkynnt fyrir íbúum Austurhóps skv. 2.mgr. 44. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn samþykkir að breytingin verði grenndarkynnt fyrir íbúum Austurhóps skv. 2.mgr. 44. greinar skipulagslaga nr. 123/2010, en frestar afgreiðslu skipulagstillögunnar þar til að grenndarkynning hefur farið fram. Bæjarstjórn óskar jafnframt frekari upplýsinga, svo sem um hæðarkvóta götu og lóða og felur bæjarráði heimild til fullnaðarafgreiðslu þegar öll gögn eru fram komin.
Samþykkt samhljóða
14. 1201058 - Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs 14. desember 2011.
Fundargerðin er lögð fram.
15. 1201057 - Samráðsfundir HS orku og Grindavíkurbæjar.
Fundargerðirnar eru lagðar fram.
16. 1201052 - Fundargerð 419. fundar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja.
Fundargerðin er lögð fram.
17. 1112052 - Fundarboð og fundargerð 635.fundar S.S.S.
Fundargerðin er lögð fram.
18. 1201051 - 636.fundur.S.S.S.fundarboð og fundargerð.
Fundargerðin er lögð fram.
19. 1201045 - 78.fundur Þjónustuhóps aldraðra.
Fundargerðin er lögð fram.
20. 1201017 - 14.fundur haldinn í stjórn Atvinnuþróunarfélags Suðurnesja.
Fundargerðin er lögð fram.
21. 1201002F - Bæjarráð Grindavíkur - 1277
Fundargerðin er lögð fram.
22. 1201005F - Bæjarráð Grindavíkur - 1278
Fundargerðin er lögð fram.
23. 1201006F - Bæjarráð Grindavíkur - 1279
Fundargerðin er lögð fram.
24. 1201003F - Frístunda- og menningarnefnd - 5
Fundargerðin er lögð fram.
25. 1201004F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 7
Fundargerðin er lögð fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:45
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
