Lögin Hjartað brennur og Hey tryggðu sér síðasta laugardagskvöld sæti í úrslitum Söngvakeppni Sjónvarpsins, sem fram fer í Eldborgarsal Hörpu 11. febrúar. Grindavík átti sinn fulltrúa á laugardaginn því sjómaðurinn Ellert Heiðar Jóhannsson sem er búsettur hér, flutti þar sitt eigið lag, Ég kem með. Textann samdi Grindvíkingurinn Mikael Tamar Elíasson sem er með Ellerti Heiðari á sjó.
Því miður komst lag Ellerts ekki áfram þrátt fyrir kraftmikinn flutning og fjörugt Ellerts og skemmtilegt lag.
Ellert Heiðar Jóhannsson er fæddur og uppalinn á Sauðárkróki, en býr nú í Grindavík þar sem hann starfar við sjómennsku.
Söngkonan Regína Ósk flutti lagið Hjartað brennur, sem er eftir Maríu Björk Sverrisdóttur, Marcus Frenell, Fredrik Randquist og Önnu Anderson. Kristján Hreinsson samdi textann.
Simbi og Hrútspungarnir fluttu lagið Hey eftir Magnús Hávarðarson, en hann samdi einnig textann.
Fimm lög öttu kappi, en þessi tvö fóru áfram eftir símakosningu almennings og mat dómnefndar, en hvort um sig hafði 50% vægi.
Lögin Mundu eftir mér og Stattu upp hafa þegar tryggt sér sæti í úrslitum, en næsta laugardagskvöld keppa fimm ný lög um síðustu tvö sætin.
Sjá nánar á heimasíðu RÚV.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
