1279. fundur Bæjarráðs Grindavíkur haldinn á skrifstofu bæjarstjóra, miðvikudaginn 18. janúar 2012 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Guðmundur L. Pálsson (GLP), Kristín María Birgisdóttir (KMB), Páll Valur Björnsson (PVB), Páll Jóhann Pálsson (PJP), Róbert Ragnarsson og Jón Þórisson.
Fundargerð ritaði: Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri
Dagskrá :
1. 1002021 - Framtíðaruppbygging íþróttamannvirkja.
Kristinn Reimarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs kom til fundarins og gerði grein fyrir lokaskýrslu Vinnuhóps um skipulag íþróttasvæðis Grindavíkur og framtíðaruppbyggingu íþróttamannvirkja.
Páll Jóhann Pálsson bæjarfulltrúi var formaður nefndarinnar og situr hann fundinn.
Bæjarráð vísar tillögunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
2. 1201036 - Tillaga um þátttöku félagsþjónustu sveitarfélagsins í matarkostnaði eldri borgara og fatlaðra
Stefanía S. Jónsdóttir forstöðumaður Miðgarðs kom til fundarins til að gera grein fyrir málinu.
Bæjarráð óskar frekari gagna um kostnaðaráhrif og frestar afgreiðslu.
3. 1201035 - Beiðni um aukin stöðugildi v.félagslegrar heimaþjónustu hjá félagsþjónustunni í Grindavík
Stefanía S. Jónsdóttir forstöðumaður Miðgarðs kom til fundarins til að gera grein fyrir málinu.
Bæjarráð óskar frekari gagna um kostnaðaráhrif og frestar afgreiðslu til næsta bæjarráðsfundar.
4. 1112001 - Þriggja ára áætlun 2013-2015
Áætlunin lögð fram með breytingum eftir umræðu síðasta fundar.
Bæjarráð vísar áætluninni til síðari umræðu í bæjarstjórn.
5. 1201029 - Aðalfundur Samorku 17.febrúar 2012.
Bæjarráð tilnefnir bæjarstjóra sem fulltrúa Grindavíkurbæjar á fundinum.
6. 1201026 - Endurnýjun samninga umhverfisráðuneytis og náttúrustofa.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við umhverfisráðuneytið í samráði við bæjarstjóra Sandgerðis og afla frekari upplýsinga.
7. 1201027 - Samanhópurinn óskar eftir styrk fyrir forvarnarstarf hópsins 2012.
Bæjarráð samþykkir að styrkja forvarnarstarf SAMAN hópsins um 50.000 kr. á árinu 2012.
8. 1201021 - Beiðni um launalaust leyfi út skólaárið 2011-2012.
Orri Freyr Hjaltalín kennari við Grunnskóla Grindavíkur óskar eftir launalausu leyfi frá störfum frá áramótum og út skólaárið.
Umsögn skólastjóra liggur fyrir.
Samþykkt.
9. 1201020 - Sérverkefni 2012-Skipting á verkefni.
Yfirlit yfir kostnað vegna sérverkefna á vegum Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum lagt fram til upplýsingar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
