Sjómaður úr Grindavík með lag í Eurovision á laugardaginn
Sjómaður úr Grindavík með lag í Eurovision á laugardaginn

Annað undanúrslitakvöld Eurovision verður næsta laugardagskvöld á RÚV. Þar mun Grindavík eiga sinn fulltrúa því sjómaðurinn Ellert Heiðar Jóhannsson sem er búsettur hér, flytur þar sitt eigið lag, Ég kem með. Textann samdi Grindvíkingurinn Mikael Tamar Elíasson sem er með Ellerti Heiðari á sjó.

Ellert Heiðar Jóhannsson er fæddur og uppalinn á Sauðárkróki, en býr nú í Grindavík þar sem hann starfar við sjómennsku.

Hann fékk ungur áhuga á tónlist. Boltinn fór að rúlla þegar hann fékk trommusett í fermingargjöf og gerðist hann þá trommuleikari. Því miður var engin eftirspurn eftir trommuleikurum og sneri hann sér þá að bassaleik og söng í hinum ýmsu hljómsveitum. Árið 2001 stofnaði hann ásamt fleirum hljómsveitina Von, þar sem Ellert gegndi hlutverki söngvara og lagasmiðs. Tvær plötur hafa komið út með sveitinni.

Ellert er ekki ókunnugur Söngvakeppni Sjónvarpsins, en Von tók þátt árið 2007 með laginu Ég hef fengið nóg. Frá því að Ellert hætti í Von árið 2009 hefur hann dundað sér við lagasmíðar. Meðal annars samdi hann lagið Einn góðan dag sem Margrét Eir flutti.

Ellert ætlar sjálfur að flytja lag sitt, Ég kem með.

Hér má hlusta á lagið og sjá viðtal við Ellert Heiðar.

Nýlegar fréttir

mið. 22. feb. 2012    Halldóra K. Magnúsdóttir ráðin skólastjóri
mið. 22. feb. 2012    Upplýsingar óskast um skemmdarvarga
mið. 22. feb. 2012    Metnaðarfullir búningar á öskudaginn!
mið. 22. feb. 2012    Þorrablót í Hópsskóla
mið. 22. feb. 2012    Sögðu sögur af afa Bjarna Ben
mið. 22. feb. 2012    Allt verður að gulli í Greip
mið. 22. feb. 2012    Að loknum lestrarspretti
mið. 22. feb. 2012    Nýtt sundnámskeið UMFG
mið. 22. feb. 2012    Fiskisalt endurnýtt í hálkuvarnir
þri. 21. feb. 2012    Yfirlýsing aðalstjórnar UMFG vegna íþróttamannvirkja
þri. 21. feb. 2012    Öskudagsball í Þrumunni
þri. 21. feb. 2012    Skólablöðin komin á vefsíðuna!
þri. 21. feb. 2012    Listaverk nemenda í Miðgarði
þri. 21. feb. 2012    Öskudagur á morgun í skólanum!
þri. 21. feb. 2012    Góðverkavika á Króki
þri. 21. feb. 2012    Friðargangan vekur athygli Friðarsamtaka bæjarstjóra
mán. 20. feb. 2012    Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins milliliðalaust á Bryggjunni
þri. 21. feb. 2012    Vita- og vísnahátíð í Garðinum
mán. 20. feb. 2012    Stærðfræðidagur á Laut
mán. 20. feb. 2012    Golfæfingar í Hópinu á sunnudögum
mán. 20. feb. 2012    Kalda vatnið tekið af Austurhópi
mán. 20. feb. 2012    Lúllu löggubangsi heimsótti Laut
mán. 20. feb. 2012    Athyglisverð tilraun í tannverndarviku á Laut
mán. 20. feb. 2012    Skemmtilegt tannverndarverkefni
mán. 20. feb. 2012    Martak - Þróa lausnir fyrir matvælaiðnaðinn