Fundur 1278

1278. fundur Bæjarráðs Grindavíkur haldinn á skrifstofu bæjarstjóra, miðvikudaginn 11. janúar 2012 og hófst hann kl. 17:00

Fundinn sátu:
Guðmundur L. Pálsson (GLP), Bryndís Gunnlaugsdóttir (BG), Kristín María Birgisdóttir (KMB), Páll Valur Björnsson (PVB), Páll Jóhann Pálsson (PJP), Þórunn Erlingsdóttir (ÞE), Dagbjartur Willardsson (DW), Vilhjálmur Árnason (VÁ), Róbert Ragnarsson og Jón Þórisson.

Fundargerð ritaði: Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri

Dagskrá:

1. 1201015 - Starf skólastjóra Grunnskóla Grindavíkur auglýst laust til umsóknar.
Bæjarstjóri og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs leggja fram tillögu um að starf skólastjóra Grunnskóla Grindavíkur verði auglýst laus til umsóknar.
Drög að auglýsingu liggja frammi.

Bæjarráð samþykkir að auglýsa starfið.

2. 1112004 - Eftirlitsheimsókn Vinnueftirlits ríkisins
.
Bæjarstjóri og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs leggja til að hafin verði vinna við að gera forvarnar- og viðbragðsáætlun gegn einelti. Lagt er til að skipaðir verði öryggistrúnaðarmenn á öllum vinnustöðum bæjarins sem saman myndi öryggisnefnd Grindavíkurbæjar.
Unnin verði ein sameiginleg viðbragðsáætlun við einelti fyrir alla starfsemi bæjarins og ber öryggisnefnd ábyrgð á henni. Í hverri stofnun verði unnið áhættumat og forvarnaráætlun.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2012vegna verkefnisins að fjárhæð 1.000.000 kr. Útgjaldaaukanum verður mætt með lækkun á handbæru fé.

3. 1111094 - Starfsmannastefna Grindavíkurbæjar

Deildarstjóri launadeildar leggur fram tillögu að breytingu á ákvæði um heilsueflingu í starfsmannastefnu Grindavíkurbæjar.
Greinin hljóðar svo núna:
Heilsuefling
Grindavíkurbær styrkir þá starfsmenn bæjarins sem vilja stunda reglubundna líkamsrækt með fjárframlagi á móti árgjaldi allt að 80% af kostnaði, þó að hámarki 20.000 krónur á ári.
Starfsmenn í hlutastarfi fá framlag miðað við hlutfall starfs.
Greiðsla styrkja fer fram hjá fjármálastjóra Grindavíkurbæjar gegn framvísun kvittunar á greiðslu ársgjalds eða árskorts.
Lagt er til að hún breytist og verði þá svona:
Heilsuefling
Grindavíkurbær styrkir þá starfsmenn bæjarins sem vilja stunda reglubundna líkamsrækt með fjárframlagi á móti árgjaldi eða námskeiðsgjaldi að hámarki 20.000 krónur á ári.
Starfsmenn í hlutastarfi fá framlag miðað við hlutfall starfs.
Greiðsla styrkja fer fram hjá launafulltrúa Grindavíkurbæjar gegn framvísun kvittunar á greiðslu. Kvittanir sem berast fyrir 20. hvers mánaðar greiðst um næstu mánaðarmót.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.

4. 1201014 - Endurgreiðsla VSK vegna kaupa á slökkvibifreiðum og slökkvibúnaði.
Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi endurgreiðslu vsk vegna kaupa á slökkvibifreiðum og slökkvibúnaði lagt fram.

5. 1201016 - Hálkuvörn og snjóhreinsun.
Ábending frá umferðarstofu til sveitarfélaga um hálkuvarnir og snjóhreinsun lögð fram.

6. 1001009 - Sameignarsamningur að óskiptu landi Jarngerðastaða og Hópstorfu.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að stofnun landeigendafélagsins.

7. 1112001 - Þriggja ára áætlun 2013-2015
Dagbjartur Willardsson og Páll Jóhann Pálsson komu til fundarins kl. 18.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnir breytingar sem orðið hafa á áætluninni frá fyrri umræðu. Bæjarráð fór yfir fjárfestingaáætlun áranna 2013-2015.

Bæjarráð vísar áætluninni til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00