Iðnaðarsvæði við Mölvík - Grindavík ásamt umhverfisskýrslu

Bæjarstjórn Grindavíkur auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagi iðnaðarsvæðis við Mölvík ásamt umhverfisskýrslu skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 7. gr. laga um umhverfismat áætlana. Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi sveitarstjórnar þann 21. desember 2011. Forkynning tillögunnar fór fram frá 28. október - 12. nóvember 2011.

Stærð skipulagssvæðisins er um 52 ha og afmarkast af mörkum iðnaðarsvæðis i8 í aðalskipulagi til norðurs og austurs. Vesturmörk svæðisins eru mörk athafnasvæðis úr aðalskipulagi Grindavíkur 2000-2020. Til suðurs afmarkast svæðið af hafi. Vestan við iðnaðarsvæðið er gert ráð fyrir iðnaðarsvæði en til norðurs og austurs er opið óbyggt svæði. Nesvegur sker svæðið í norður og suðurhluta. Aðkoma að svæðinu er frá Nesvegi.

Deiliskipulagstillagan er í samræmi við Aðalskipulag Grindavíkur 2010-2030 sem auglýst var skv. 18. gr. skipulags og byggingarlaga nr. 73/1997 á tímabilinu frá 9. apríl til 23. maí 2011 og samþykkt af bæjarstjórn 26. október 2011.

Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Grindavíkurbæjar Víkurbraut 62, 240 Grindavík og á heimasíðu bæjarins www.grindavik.is frá og með 14. janúar 2012 til 25. febrúar 2012.

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Skriflegum athugasemdum skal skila á bæjarskrifstofu Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62, eigi síðar en 27. febrúar 2012.

Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.

Ingvar Þór Gunnlaugsson
Forstöðumaður Umhverfis- og skipulagssviðs Grindavíkurbæjar.

Deiliskipulagsteikning