7. fundur skipulags- og umhverfisnefndar

 

 

 

 

 

 

 

7. fundur Skipulags- og umhverfisnefndar haldinn  á skrifstofu byggingafulltrúa, mánudaginn 9. janúar 2012 og hófst hann kl. 17:00

 

 

Fundinn sátu:

Vilhjálmur Árnason (VÁ), Jón Emil Halldórsson (JEH), Helgi Þór Guðmundsson (HÞG) og Guðmundur Einarsson (GE).

Auk þess sat Ásbjörn Blöndal frá HS-Orku fundinn undir mál nr. 2.

 

Fundargerð ritaði:  Ingvar Þór Gunnlaugsson, Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs

 

 

 

Dagskrá:

 

1.

1201012 - Ósk um umsögn á teikningum þjónustuhúss við Bláa Lónið

 

Bláa Lónið óskar eftir umsögn nefndarinnar á teikningum þjónustuhúss við Bláa Lónið í Grindavík. Teikningar eru unnar af Basalt arkítektum dags. janúar 2012

 

Nefndin tekur jákvætt í teikningar þjónustuhúss enda eru þær í samræmi við deiliskipulagsbreytingu sem er í vinnslu.

 

 

 

2.

1201010 - Ósk um framkvæmdaleyfi, vegna niðurrennslislagnar í Skipsstígshrauni

 

HS-orka sækir um framkvæmdarleyfi að nýju til að leggja niðurrennslislögn frá orkuverinu í Svartsengi að niðurrennslisholum í Skipsstígshrauni. Grindavíkurbær hafði áður veitt leyfi fyrir framkvæmdinni en það er fallið úr gildi þar sem að framkvæmdin hófst ekki innan tilskins tíma. Greinargerð vegna niðurrennslislagnarinnar er lögð fram unnin af VSÓ ráðgjöf dags. október 2011.

 

Ásbjörn Blöndal frá HS-Orku kom og kynnti áform HS-Orku í fráveitumálum

Orkuversins í Svartsengi.

Nefndin samþykkir framkvæmdaleyfi skv. 1. mgr. 15. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

 

 

 

3.

1111042 - Deiliskipulag fyrir iðnaðarsvæði/hafnarsvæði í Grindavík. Málsmeðferð eftir auglýsingu

 

Deiliskipulag vegna iðnaðarsvæðis ofan hafnarsvæðis er lagt aftur fyrir nefndina eftir auglýsingu og athugasemdir skipulagsstofnunar. Athugasemdir sbr. bréf Skipulagsstofnunar dags.16.des 2011 og breyttur uppdráttur unnin af Eflu verkfræðistofu dags. janúar 2012 er lagt fram þar sem hefur verið tekið tillit til athugasemda.

 

Nefndin samþykkir breytingar sem unnar hafa verið á deiliskipulaginu til samræmis athugasemda Skipulagsstofnunar, jafnframt vísar nefndin deiliskipulaginu til umsagnar hjá Hafnarnefnd.

 

4.

1112025 - Breyting á deiliskipulagi við Bláa Lónið í Grindavík

 

Bláa Lónið ehf. óskar eftir breytingu á deiliskipulagi við Bláa Lónið í Grindavík sbr. uppdrætti og greinargerð dags.desember 2011 unnið af Basalt arkítektum.
Heilsulind Bláa Lónsins hefur verið starfrækt á núverandi stað frá 1999. Í
deiliskipulagi fyrir þjónustureitinn frá 1996 var eftirfarandi starfsemi skilgreind:
baðstaður, meðferðarstöð og hótelbygging. Á lóð var skilgreint tjaldstæði við
bílastæði gesta. Lækningalind (meðferðarstöð) er þegar byggð á aðliggjandi reit skv.
deiliskipulagi frá 2002. Því er sú starfsemi ekki á nýju deiliskipulagi. Tjaldstæði er í
Grindavíkurkaupstað og því ekki þörf á slíkri þjónustu á athafnasvæði Bláa Lónsins
hf. Uppbygging hótels við Heilsulindina er fyrirhuguð á sama stað og deiliskipulagið
frá 1996 kveður á um. Ný aðstaða fyrir heilsulindarþjónustu er fyrirhuguð sem skal
tengjast hótelinu annars vegar og núverandi Heilsulind hins vegar.
Niðurstaða ítarlegra kannana sýna að mikil þörf er fyrir þjónustuhús við bílastæði
Heilsulindarinnar. Stór hluti gesta kemur í hópferðarbílum sem koma mislangt að og
safnast saman á bílastæðunum áður en lengra er haldið. Húsið verður
upplýsingamiðstöð ferðamanna fyrir Reykjanes, snyrtingar og töskugeymsla. S.l. tvö
ár hefur töskugeymsla í einingahúsi úr timbri verið rekin á staðnum á bráðabirgða
byggingarleyfi bæjaryfirvalda.
Í deiliskipulagi er ný lóð innan reitsins skilgreind undir þessa þjónustu. Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs leggur til að skipulagið verði samþykkt til auglýsingar skv.1.mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010

 

 Nefndin samþykkir tillögu Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs enda komu engar athugasemdir inn á forkynningartímabilinu.

 

 

 

 

 

5.

1201011 - Ósk um breytingu á deiliskipulagi Miðhóps 1-9 í Grindavík.

 

HH. Smíði óskar eftir því við Grindavíkurbæ að breyta deiliskipulagi við Miðhóp 1-9 í Grindavík. Í núgildandi deiliskipulagi er gert ráð fyrir 5 íbúða raðhúsi á lóðinni, en HH smíði vill færa bindandi byggingalínu húsanna

 

Nefndin samþykkir deiliskipulagsbreytinguna og telur að breytingin sé óveruleg.  Nefndin leggur til að breytingin verði grenndarkynnt fyrir íbúum Austurhóps skv. 2.mgr. 44. greinar skipulagslaga nr. 123/2010

 

 

 

 

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:20

 

 

___________________________                      ___________________________

 

 

 

 

___________________________                      ___________________________    

 

 

 

___________________________                      ___________________________

 

 

 

 

___________________________                      ___________________________