Fundur 1277

1277. fundur Bæjarráðs Grindavíkur haldinn á skrifstofu bæjarstjóra, miðvikudaginn 4. janúar 2012 og hófst hann kl. 17:00

Fundinn sátu:
Guðmundur L. Pálsson (GLP), Bryndís Gunnlaugsdóttir (BG), Kristín María Birgisdóttir (KMB), Páll Valur Björnsson (PVB), Róbert Ragnarsson og Jón Þórisson.

Fundargerð ritaði: Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri

Dagskrá:

1. 1002021 - Framtíðaruppbygging íþróttamannvirkja.
Umsagnir um tillögu að uppbyggingu íþróttamannvirkjum lagðar fram.
Kristinn Reimarsson kom á fundinn og gerði grein fyrir hvernig nefndin hyggst bregðast við ábendingum.

2. 1112040 - Sameining almennings- og skólabókasafns.
Minnisblað sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs um skipan vinnuhóps um sameiningu almennings- og skólabókasafns og flutning tónlistarskóla lagt fram.

Bæjarráð skipar eftirfarandi í vinnuhópinn.
Fanney Pétursdóttir, forstöðumaður skólabókasafns:
Margrét Gísladóttir, forstöðumaður Bókasafns Grindavíkur.
Inga Þórðardóttir, skólastjóri Tónlistarskóla Grindavíkur.
Fulltrúi grunnskólans samkvæmt ákvörðun skólastjórnanda.
Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri verður formaður hópsins.
Sviðsstjórar frístunda- og menningarsviðs og skipulags- og umhverfissviðs skulu vinna með hópnum.
Vinnuhópurinn skal hafa samráð við Frístunda- og menningarnefnd, Fræðslunefnd og Ungmennaráð.

3. 1112030 - Tilboð í rekstur líkamsræktar í sundmiðstöð Grindavíkurbæjar.
Auglýst var eftir samstarfi við áhugasama aðila um rekstur líkamsræktar í Sundmiðstöð Grindavíkur þann 1. desemer síðastliðinn. Eitt tilboð barst, frá Actic Ísland ehf.

Fyrir fundinum liggur tilboð Actic og tillaga að leigusamningi til 2 ára.

Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við Actic Ísland ehf á grundvelli fyrirliggjandi tillögu að leigusamningi með breytingum sem ræddar voru á fundinum og felur bæjarstjóra að undirrita og leggja fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.

4. 1201003 - Breyting á aðstöðu í sundmiðstöð fyrir líkamsrækt.
Slökkvistjóri telur ekki ásættlanlegt að vera með starfsemi í kjallara Sundmiðstöðvar Grindavíkur fyrir fleiri en 2-4 í einu þar sem flóttaleiðir séu ekki nægilega greiðar.

Í ljósi þess leggur bæjarstjóri til að austurenda sundmiðstöðvarinnar þar sem ljósabekkur og sauna eru í dag verði breytt og skapað pláss fyrir líkamsræktaraðstöðu.

Samþykkt samhljóða.

5. 0807012 - Ávöxtun fjármuna Grindavíkurbæjar
Staða ávöxtunar á fjármunum bæjarins rædd og hugmyndir um aðrar ávöxtunarleiðir.

Bæjarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs falið að kanna ávöxtunarleiðir.

6. 1112012 - Gjaldskrá þjónustugjalda 2012.
Bæjarráð samþykkir að leiðrétta prentvillu í útgefinni gjaldskrá fyrir leikskóla varðandi gjald milli kl. 16 og 17. Rétt gjald fyrir tímann milli kl. 16 og 17 er kr. 7.481.

7. 1105012 - Suðurnesjalína 2. Viðræður við landeigendur.
Drög að samningi milli Landsnets og landeigenda óskipts lands Járngerðarstaða og Hópstorfu um uppgjör fébóta vegna kvaðar sem hlýst af lagningu 220 kV rafmagnslínu og ljósleiðara, sem lögð verða í landi jarðarinnar, sem og fyrir umsamin afnot af landi jarðarinnar undir 3 stauravirki vegna rafmagnslínunnar, ljósleiðara og vegslóða lögð fram.

Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra umboð til undirritunar.

8. 1112056 - Gjaldtaka á endurvinnslustöðvum Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
Upplýsingar um breytingar á gjaldskrám Kölku lagðar fram.

9. 1112055 - Hlutabréf Grindavíkurbæjar í HS veitum
Umræða um mögulega sölu á 0,51% hlut Grindavíkurbæjar í HS veitum hf, en Reykjanesbær og aðrir eigendur félagsins ráðgera sölu á hluta sinna bréfa.

Afgreiðslu frestað.


10. 1112010 - Kvenfélag Grindavíkur óskar eftir að hafa afnot að af tjaldstæðahúnæðinu í vetur.
Leigusamningur lagður fram og samþykktur samhljóða.

11. 1112044 - Tillaga um stefnumótun á þjónustusvæði Suðurnesja um málefni fatlaðs fólks.
Tillagan er lögð fram og vísað til umsagnar í félagsmálanefnd.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30