Ár 2012, þriðjudaginn 3. janúar var haldinn 5. fundur frístunda- og menningarnefndar Grindavíkur. Fundurinn var haldinn á bæjarskrifstofunni og hófst kl. 20:00.
Mættir voru: Jóna Rut Jónsdóttir, Þórunn Erlingsdóttir, Helena B. Bjarnadóttir, Helga Kristjánsdóttir og Ægir Viktorsson. Jafnframt sat fundinn Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sem ritaði fundargerð.
Dagskrá:
Almenn erindi
1. 1002021 - Framtíðaruppbygging íþróttamannvirkja.
Óskað umsgnar.
Frístunda- og menningarnefnd fagnar þeim hugmyndum sem fram eru komnar um uppbyggingu mannvirkja á íþróttasvæði Grindavíkur. Telur nefndin að vel hafi tekist til við að uppfylla þær forsendur sem bæjarstjórn setti fram og sérstaklega m.t.t. þess að að samrýma starfsemi allra deilda UMFG og stórauka möguleika til almenningsíþrótta. Enga að síður telur nefndin að taka megi til endurskoðunar eftirfarandi atriði:
- Stækkun á sal fyrir júdó og taekwondó.
- Að kannað verði hvort hægt verði að útbúa gryfju fyrir fimleika án þess að það rýri möguleika annarra íþróttagreina til æfinga.
- Að skoðað verði betur hvar aðalinngangur á knattspyrnuvöllinn verði til framtíðar og aðgengi áhorfenda að félagsheimli UMFG verði sem best.
- Að gerðar verði frekari tillögur að framtíðarskipulagi svæðisins sem snýr sérstaklega að:
o Uppbyggingu við Hópið
o Nýrri 25m innisundlaug og góðu útisvæði með heitum pottum, gufubaði og rennibrautum
- Að þess verði gætt að merkingar á húsnæði sé til fyrirmyndar og á áberandi stað verði komið fyrir merki Grindavíkur og UMFG.
2. 1112002 - Þrettándagleði 2012.
Þar sem veðurútlit er ekki gott fyrir föstudaginn verður beðið með endanlega ákvörðun til fimmtudags. Hugsanlega verður skemmtidagskrá frestað til laugardags og munu hátíðarhöldin að mestu leyti fara fram í íþróttahúsinu.
3. 1201001 - Menningarvika 2012.
Samþykkt að menningarvika 2012 verði 17. - 24. mars
4. 1111014 - Fundargerðir forvarnarteymis Grindavíkur.
Lagt fram
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 21:00
Jóna Rut Jónsdóttir
Þórunn Erlingsdóttir
Helga Kristjánsdóttir
Helena B. Bjarnadóttir
Ægir Viktorsson
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
