Deiliskipulag verslunar-og þjónustusvæðis við Bláa Lónið er nú til forkynningar í tvær vikur s.k.v. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Öllum er heimilt að gera athugasemd við tillöguna og skulu athugasemdir berast skriflega á skrifstofu Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62, merkt „Forkynning, Verslunar-og þjónustusvæði " fyrir 6. janúar 2012.
Deiliskipulagstillagan er í samræmi við Aðalskipulag Grindavíkur 2010-2030 sem auglýst var skv. 18. gr. Skipulags og byggingarlaga nr. 73/1997 á tímabilinu frá 9.apríl til 23.maí 2011 og var samþykkt af bæjarstjórn 26. október 2011
Deiliskipulagssvæðið afmarkast afmarkast til suðurs af almennu útivistarsvæði, til vesturs og norðurs af þjóðvegi nr. 426, og til austurs af lóð Lækningalindar Bláa Lónsins og athafnasvæði HS Orku. Stærð skipulagssvæðisins er 42 ha.
Hægt er að nálgast tillöguna á skrifstofu Grindavíkurbæjar Víkurbraut 62, 240 Grindavík og á heimasíðu bæjarins www.grindavik.is.
Þeir sem vilja koma á framfæri ábendingum eða athugasemdum við deiliskipulagið skulu senda þær, eigi síðar en 6.janúar 2012 nk., til Tæknideildar Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62, 240 Grindavík eða með tölvupósti á póstfangið ingvar@grindavik.is.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
