414. fundur bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 21. desember 2011 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Bryndís Gunnlaugsdóttir (BG), Páll Jóhann Pálsson (PJP), Kristín María Birgisdóttir (KMB), Dagbjartur Willardsson (DW), Páll Valur Björnsson (PVB), Hilmar E Helgason (HEH), Vilhjálmur Árnason (VÁ), Róbert Ragnarsson og Jón Þórisson.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá:
1. 1112039 - Breytingar á stöðugildum bókasafns.
Til máls tók: Bryndís
Í hagræðingarskyni er lagt til að stöðugildum á almenningsbókasafni Grindavíkur verði fækkað úr 2,25 í 2 stöðugildi.
Breytingin hefur ekki áhrif á opnunartíma.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að koma henni til framkvæmda.
2. 1112040 - Sameining almennings- og skólabókasafns.
Til máls tóku: Bryndís, Kristín María, Dagbjartur, bæjarstjóri og Vilhjálmur
Með vísan til skýrslunnar Kostir og gallar þess að sameina skóla- og almenningsbókasafn Grindavíkur er lagt til að almennings- og skólabókasafn Grindavíkur verði sameinuð í nýju húsnæði sem verði samtengt Grunnskóla Grindavíkur.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við nýtt húsnæði hefjist á árinu 2012 og taki sameiningin gildi við opnun.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna að faglegum og rekstrarlegum undirbúningi sameiningarinnar í samráði við forstöðumenn bókasafnanna og grunnskóla Grindavíkur.
3. 1112041 - Þjónustumiðstöð, útvíkkun á starfsemi
Til máls tóku: Bryndís og Páll Valur
Með vísan til minnisblaða sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs er lagt til að öll starfsemi sem varðar fasteignir, akstur, veitur, götur, stíga og opin svæði verði sameinuð undir eina yfirstjórn í Þjónustumiðstöð.
Í Þjónustumiðstöðinni verði fimm starfsmenn og einn þeirra verði yfirmaður miðstöðvarinnar og næsti yfirmaður starfsmanna. Starfsemin heyri undir skipulags- og umhverfissvið.
Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs er veitt heimild til að ráða í eitt stöðugildi til þess m.a. að leysa akstur sem hingað til hefur verið keyptur í verktöku og gera nauðsynlegar breytingar á starfslýsingum starfsmanna.
Samþykkt samhljóða
4. 1112042 - Skólasamningur grunnskóla árið 2012-2013
Til máls tók: Bryndís
Samningur um rammafjárveitingar og fjárhagslega ábyrgð á skólastarfi í Grunnskóla Grindavíkur skólaárið 2012-2013 lagður fram.
Bæjarstjórn samþykkir samninginn og felur sviðsstjóra félagsþjónustu-og fræðslusviðs innleiðingu hans í samstarfi við skólastjóra.
5. 1108024 - Álagningarreglur fasteignagjalda 2012
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslu fór yfir reglurnar.
Álagningarreglur fasteignagjalda 2012:
1. Fasteignaskattur
1.1. Íbúðarhúsnæði (a-liður)........ 0,31% af fasteignamati húss og lóðar
1.2. Opinberar byggingar (b-liður).. 1,32% af fasteignamati húss og lóðar
1.3. Annað húsnæði (c-liður)........ 1,65% af fasteignamati húss og lóðar
2. Holræsagjald
2.1. Íbúðarhúsnæði (a-liður)........ 0,13% af fasteignamati húss og lóðar
2.2. Opinberar byggingar (b-liður).. 0,25% af fasteignamati húss og lóðar
2.2. Annað húsnæði (c-liður)........ 0,25% af fasteignamati húss og lóðar
3. Vatnsgjald
3.1. Íbúðarhúsnæði (a-liður)........ 0,14% af fasteignamati húss og lóðar
3.2. Opinberar byggingar (b-liður).. 0,25% af fasteignamati húss og lóðar
3.3. Annað húsnæði (c-liður)........ 0,25% af fasteignamati húss og lóðar
3.4. Aukavatnsgjald................. 15 kr/m3 vatns
4. Sorphreinsunargjald/Tunnuleiga
4.1. Íbúðarhúsnæði.................. 9.765 kr. tunnu pr. ár
5. Sorpeyðingargjald
5.1. Íbúðarhúsnæði.................. 26.460 kr. tunnu pr. ár
6. Lóðarleiga
6.1. Íbúðahúsalóðir................. 1,20% af fasteignamati lóðar
6.2. Lóðir v. opinberra bygginga.... 2,00% af fasteignamati lóðar
6.3. Lóðir v. annað húsnæði......... 1,60% af fasteignamati lóðar
7. Rotþróargjald
7.1. Rotþróargjald.................. 10.000 kr. pr. rotþró pr. ár
8. Fjöldi gjalddaga 10
1/2, 1/3, 1/4, 1/5, 1/6, 1/7, 1/8, 1/9, 1/10 og 1/11 2012
Álagningarreglur fasteignagjalda eru samþykktar samhljóða.
6. 1112012 - Gjaldskrá þjónustugjalda 2012.
Til máls tóku: Bryndís, Kristín María
Tillaga að þjónustugjaldskrá 2012 lögð fram. Almennt hækka gjaldskrár um 5% í samræmi við verðlagsbreytingar, en gjald vegna matar í leikskóla hækkar um 10% til að standa undir hráefniskostnaði. Greiðsluþátttaka foreldra í skólamáltíðum grunnskóla verði 55% af innkaupsverði. Innkaupsverð frá Skólamat verður 507 kr. frá 1. janúar 2012, þannig að greiðsluþátttaka foreldra verður 279 kr.
Gildistaka 1. janúar 2012, nema annað sé tekið fram
Leikskólagjöld 2012
Tímagjald 2.993
Tímagjald, einstæðir foreldrar 2.258
Viðbótar 15 mínútur, fyrir 998
Viðbótar 15 mínútur, eftir 998
9. tíminn, almennt gjald 4.489
9. tíminn, einstæðir foreldrar 3.386
Hressing (morgun/síðdegi) 2.209
Hádegismatur 4.180
Afsláttarreglur:
Systkinaafsl. 2. barn 50% af gjaldi
Systkinaafsl. 3. barn og fleiri, vistun frítt en greitt fyrir mat og hressingu
Afsláttur til námsmanna: Sama afsláttargjald og einstæðir foreldrar
en miðað er við að báðir foreldrar séu í námi
Tónlistarskólagjöld 2012
Ný gjaldskrá frá og með 1. ágúst 2012
Fullt hljóðfæranám 51.450
Hálft hljóðfæranám 30.975
Fullt söngnám 59.850
Hálft söngnám 39.375
Fullt aukahljóðfæri 34.335
Hálft aukahljóðfæri 20.318
Blásarasveit 14.123
Hljóðfæraleiga 4.799
Hljóðfæranámskeið, hópur 13.650
Söngnámskeið, hópur 39.900
Afsláttarreglur
Systkinaaflsáttur, 2. barn 50%
Systkinaaflsáttur, 3. barn 75%
Sundlaug 2012
Stakt gjald barna 200
Stakt gjald fullorðinna 400
10 miða kort, börn 1.500
10 miða kort, fullorðnir 3.150
30 miða kort fullorðnir 7.500
3 mánaða kort fullorðnir ekki í boði
Árskort, fullorðnir 20.000
Árskort hjóna ekki í boði
Árskort fjölskyldu 38.000
Árskort barna 6 - 18 ára 5.250
byrja að greiða við upphaf skólagöngu
Börn 0- 5 ára frítt (fram að skólagöngu)
Við kaup á 20-99 árskortum. Verð 16.000 kr/stk
Við kaup á 100-199 árskortum. Verð 12.000 kr/stk
Við kaup á 200 eða fleiri árskortum. Verð 8.500 kr/stk
Leikjanámskeið 2012
Tveggja vikna námskeið, viðvera 1/2 dagur 6.000
Tveggja vikna námskeið, viðvera allur dagurinn 9.500
Systkinaafsláttur 50%
Bókasafn 2012
Árgjald, 16-67 ára 1.500
Börn, öryrkjar og ellilífeyrisþegar fá kort sér að kostnaðarlausu.
Leiga á DVD 260
Leiga á tungumálanámsk. 260
Leiga á margmiðlunarefni 260
Frátekt á bók, kr./stk. 50
Sekt á bækur og CD, kr. pr. dag 20
Sekt á DVD og margmiðlunarefni pr. dag. 50
Internet, fyrstu 15. mín 150
Internet, 30 mín. 250
Internet, 1. klst. 400
Plöstun A5 50
Plöstun A4 100
Plöstun A3 150
Vegna Grunnskóla 2012
Skólamáltíðir, hluti foreldra 55%, ca frá 1. jan 2012 279
Skólasel 2012
Allt að 20 tímum pr. mán 5.775
Frá 21 til 40 tíma pr. mán 10.395
Frá 41 til 60 tíma pr. mán 15.225
Frá 61 til 80 tíma pr. mán 19.845
Afsláttarreglur, systkinaaflsáttur á hvern gjaldflokk
Systkinaaflsáttur, 2. barn 50%
Systkinaaflsáttur, 3. barn 75%
Tjaldsvæði 2012
Gistinótt, hver einstaklingur 950
Fjórða hver nótt frí
Gjaldfrítt fyrir 14 ára og yngri
Rafmagn, sólarhringur 750
Hljóðkerfi 2012
Sólarhringur 30.000
Kvennó, félagsmiðstöðin Þruman 2012
Leigugjald húsnæðis, pr. klst. 5.000
Íþróttamannvirki 2012
Verð eru fyrir hverja klst.
Hópið, leiga á heilum velli 11.000
Íþróttahús:
Leiga á sal, stóri salur allur 5.300
Leiga á sal, stóri salur hálfur 2.800
50% viðbótargjald vegna leikja 2.700
Leiga á sal, litli salur 2.500
Leiga á íþróttahúsi fyrir skemmtanir 10.400
Við bætist 40.-50.000 kr. í stefgjöld, eftir fjölda gesta
Grunnskóli, leigugjald afnota fyrir árið 2012
Eitt kvöld Hálfur Heill
Húsnæði 2,5 klst. dagur dagur Gisting
Samkomusalur 10.000 15.000 25.000 1000 pr. mann
Tölvuver 5.000 7.000 10.000
Heimilisfræði 5.000 7.000 10.000
Textílstofa 5.000 7.000 10.000
Smíðastofa 5.000 7.000 10.000
Myndmenntastofa 4.000 7.000 10.000
Skólastofa 4.000 7.000 10.000 1000 pr. mann
Samþykkt samhljóða
7. 1111061 - Þjónustugjaldskrá Grindavíkurhafnar 2012
Til máls tóku: Bryndís, Páll Jóhann og Hilmar
Hafnarstjórn leggur til að þjónustugjaldskrá Grindavíkurhafnar hækki um 5% fyrir árið 2012 í samræmi við verðlagsbreytingar, en aflagjöld verði óbreytt.
Samþykkt samhjóða
8. 1112033 - Tekjuviðmið 2012 vegna afsláttar elli- og örorkulífeyrisþega á fasteignaskatti og fráveitugjaldi
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að allar fjárhæðir vegna afsláttar af fasteignaskatti og fráveitugjaldi hækki um 5%.
9. 1112013 - Fjárhagsáætlun 2012. S.S.S:
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fjárhagsáætlun SSS fyrir árið 2012. Heildarframlög Grindavíkurbæjar eru 64.071.000 kr. Öll framlög hafa verið færð inn í tillögu að fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar fyrir árið 2012.
10. 1108013 - Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar 2012
Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar 2012 er tekin til síðari umræðu.
Bæjarstjóri fór yfir helstu fjárhagsstærðir í fjárhagsáætlun ársins 2012.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Páll Valur, Páll Jóhann og Bryndís
Bókun
Rekstrarniðurstaða sveitarsjóðs, þ.e. A-hluta, fyrir fjármagnsliði, er áætluð 48,9 milljónir í tap. Hinsvegar er áætlaður rekstrarafgangur 69 milljónir kr.að teknu tilliti til vaxtatekna af hitaveitusjóði og öðrum fjármagnsliðum að fjárhæð 117,9 milljónir. Í samanteknum reikningsskilum er gert ráð fyrir afgangi að fjárhæð 71,7 milljónum króna. Heildareignir í samanteknum reikningsskilum eru áætlaðar í árslok 2012, 7.207,5 milljónir kr. Þar af er áætlað að innlán standi í um 1.361,4 milljónum kr. Heildarskuldir og skuldbindingar eru áætlaðar 1.443,0 milljónir kr. Þar af er lífeyrisskuldbinding um 416 milljónir króna. Langtímaskuldir eru áætlaðar 792,7 milljónir króna í árslok 2012. Þar af eru skuldir við lánastofnanir um 300 milljónir kr. Veltufé frá rekstri í samanteknum reikningsskilum árið 2012 er áætlað 308,9 milljónir kr. Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum er áætluð 496,6 milljónir króna og afborganir langtímalána eru áætlaðar 31 milljón króna.
Til fjármögnunar framkvæmda, umfram það sem reksturinn stendur undir, mun þurfa að taka 194 milljónir af bankainnistæðu. Handbært fé í árslok 2012 er áætlað 1.167,2 milljónir króna.
Fjárhagsáætlun ársins 2012 er unnin í samræmi við þau rekstrarmarkmið sem bæjarstjórn samþykkti á 401. fundi. Samkvæmt þeim markmiðum er á árinu 2012 heimilt að nýta 50% af vaxtatekjum til rekstrar.
Bæjarráð óskaði umsagnar PwC um áætlaðar fjárfestingar á árinu 2012, í samræmi við ákvæði 65. gr. laga nr. 45/1998 um sveitarfélög. Í umsögninni kemur fram að áætluð áhrif fjárfestinga á íþróttasvæði á rekstrarreikning bæjarins muni nema um 44-48 milljónum á ári fyrstu 10 árin frá því mannvirkin eru tilbúin. Þar af er árlegur viðbótarrekstrarkostnaður vegna mannvirkjanna áætlaður 5,5- 9 milljónir. Aðrir liðir eru hækkun afskrifta og vaxtatap. Áhrif fjárfestingarinnar á sjóðsstreymi munu verða 27,5-31 milljón kr í minna veltufé á ári.
Ljóst er að halda þarf vel utanum rekstur bæjarins á komandi árum svo bæjarsjóður ráði við þann aukna rekstrarkostnað sem verður samfara framkvæmdunum. Lokagreiðslur styrkja vegna framkvæmda við reiðhöll og golfvöll verða á næstu 2 árum sem munu lækka útgjöld til íþrótta- og æskulýðsmála um rúmar 20 milljónir á ári. Auk þess er gert ráð fyrir vaxandi tekjum á næstu árum samkvæmt þriggja ára áætlun. Bæjarstjórn hefur því trú á að bæjarsjóður muni ráða við aukinn rekstrarkostnað vegna framkvæmdanna.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2012.
Bæjarstjórn vill einnig þakka starfsfólki bæjarins samstarfið og þeirra framlag við fjárhagsáætlunargerðina.
11. 1112001 - Þriggja ára áætlun 2013-2015
Bæjarstjóri kynnti tillögu að þriggja ára rammaáætlun fyrir árin 2013-2015.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa áætluninni til síðari umræðu í janúar 2012.
12. 1105038 - Breyting á reglum um sérstakar húsaleigubætur í Grindavík
Tillögur félagsmálanefndar um breytingar á reglum um sérstakar húsaleigubætur lagðar fram.
Samþykkt samhljóða
13. 1005028 - Samningur um kaup á landi og orkuauðlind í Svartsengi.
HS orka hf. tilkynnti Grindavíkurbæ þann 19. september sl. að félagið hyggist virkja ákvæði í grein 1.4. í hagnýtingarsamningi um náttúruauðlindir frá 17. maí 2010.
Fyrir fundinum liggja nauðsynleg gögn svo hægt sé að ljúka málinu.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra að undirrita skjölin.
14. 1112038 - Ár sjálfboðaliðans
Í tilefni þess að árið 2011 er tileinkað sjálfboðaliðum leggur frístunda- og menningarnefnd til við bæjarstjórn að Björgunarsveitinni Þorbirni verði veitt viðurkenning fyrir öflugt sjálfboðaliðastarf í þágu Grindvíkinga.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillöguna og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarmála jafnframt að kalla eftir tilnefningum frá félagasamtökum um einstaklinga sem hafa sýnt óeigingjarnt sjálfboðastarf í þágu samfélagsins í Grindavík og veita þeim viðurkenningar á gamlársdag.
15. 1112017 - Lífeyrisskuldbindingar vegna Gjaldheimtu Suðurnesja
Minnisblað sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs lagt fram.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að sá hluti lífeyrisskuldbindingar vegna Gjaldheimtu Suðurnesja sem fellur á sveitarfélögin á Suðurnesjum skiptist í hlutfalli við íbúafjölda.
16. 1110023 - Nýtt deiliskipulag við Mölvík í Grindavík
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að deiliskipulagstillaga fyrir athafnasvæði við Mölvík í Grindavík verði auglýst skv. 1.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagstillagan hefur verið forkynnt á heimasíðu sveitarfélagsins skv. 4. mgr. 40. gr skipulagslaga nr 123/2010, engar athugasemdir bárust.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að auglýsa deiliskipulagið skv. 1.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
17. 1111072 - Lagning ljósleiðarastrengs um Grindavíkurdjúp og Selvogsgrunn að Mölvík - beiðni um umsögn
Til máls tók: Hilmar
Skipulagsstofnun óskar eftir umsögn Grindavíkurbæjar varðandi lagningu ljósleiðarastrengs um Grindavíkurdjúp og Selvogsgrunn að Mölvík. Í samræmi við 6. gr. laga nr. 106/2000 m.s.b. og 11. gr. reglugerðar nr. 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum er óskað eftir að Grindavíkurbær veiti umsögn um hvort og á hvaða forsendum ofangreind framkvæmd skuli háð mati á umhverfisáhrifum að teknu tilliti til 3. viðauka í framangreindum lögum.
Framkvæmdin sem kynnt er í skýrslu Emerald Express er í samræmi við þá vinnu sem farið hefur fram í sveitarfélaginu, endurskoðað aðalskipulag og deiliskipulagstillögu sem lögð hefur verið fram.
Bæjarstjórn tekur undir álit skipulags- og umhverfisnefndar þess efnis að ofangreind framkvæmd skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Bæjarstjórn vekur jafnframt athygli á því að rangt er að strengurinn liggi um Selvogsgrunn, heldur liggur hann um Reykjanesgrunn.
18. 1112025 - Breyting á deiliskipulagi við Bláa Lónið í Grindavík
Til máls tóku: Vilhjálmur og Páll Jóhann
Bláa Lónið ehf. óskar eftir breytingu á deiliskipulagi við Bláa Lónið í Grindavík sbr. uppdrætti og greinargerð dagsett í desember 2011 unnið af Basalt arkítektum.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa tillögunni til forkynningar skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og sviðsstjóra skipulags-og umhverfissviðs falið að undirbúa kynningu fyrir bæjarbúa.
19. 1112003F - Bæjarráð Grindavíkur - 1275
Til máls tóku: Dagbjartur, Páll Jóhann, bæjarstjóri og Vilhjálmur
Fundargerðin er lögð fram.
20. 1112007F - Bæjarráð Grindavíkur - 1276
Til máls tóku: Páll Valur, Kristín María, bæjarstjóri og Bryndís
Fundargerðin er lögð fram.
21. 1112015 - 24.fundur Menningarráðs Suðurnesja.
Enginn tók til máls.
Fundargerðin er lögð fram.
22. 1112043 - Fundargerð 418. fundar stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
Til máls tóku: Páll Jóhann, Vilhjálmur og Kristín María
Fundargerðin er lögð fram.
23. 1112028 - 34. fundur Samvinnunefndar um svæðisskipulag
Enginn tók til máls.
Fundargerðin er lögð fram.
24. 1112003 - 47.sambandsþing Ungmennafélag Íslands.
Til máls tók: Bryndís
Fundargerðin er lögð fram.
25. 1112007 - 634.fundur haldin í stjórn S.S.S.
Enginn tók til máls.
Fundargerðin er lögð fram.
26. 1111078 - 227.fundur Heilbrigðisnefndar Suðurnesja.
Enginn tók til máls.
Fundargerðin er lögð fram.
27. 1112002F - Frístunda- og menningarnefnd - 4
Enginn tók til máls.
Fundargerðin er lögð fram.
28. 1112008F - Hafnarstjórn Grindavíkur - 407
Til máls tók: Bryndís
Fundargerðin er lögð fram.
Bæjarstjórn þakkar Sverri Vilbergssyni fyrir vel unnin störf og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.
29. 1111009F - Hafnarstjórn Grindavíkur - 406
Enginn tók til máls.
Fundargerðin er lögð fram.
30. 1112004F - Fræðslunefnd - 4
Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram.
31. 1112006F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 6
Enginn tók til máls.
Fundargerðin er lögð fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
