Syngur í Carnegie Hall
Syngur í Carnegie Hall

Rósalind Gísladóttir óperusöngkona og söngkennari við Tónlistarskóla Grindavíkur sigraði í söngkeppninni Barry Alexander International Vocal Competition á dögunum. Í sigurlaun fær hún að syngja einsöng í Carnegie Hall í New York í janúar.

„Þetta er ótrúlega spennandi, enda ekki á hverjum degi sem maður fær að koma fram í einu frægasta tónlistarhúsi í heimi," segir Rósalind Gísladóttir, óperusöngkona og nýbakaður sigurvegari í söngkeppninni Barry Alexander Vocal International Competition (BAVIC) í New York. Í sigurlaun fær hún að syngja einsöng í hinu víðfræga tónlistarhúsi Carnegie Hall í New York 29. janúar næstkomandi.

BAVIC-keppnin skiptist í fjóra flokka og keppti Rósalind í flokki atvinnumanna. Hver keppandi sendir inn hljóð- og myndupptökur af sér og eru úrslitin ákveðin á grundvelli þeirra.

„Dómnefndin leitast við að meta hvernig söngvarar standa sig undir eðlilegum aðstæðum frekar en undir keppnispressu og reyna að taka inn í reikninginn allt sem góður söngvari þarf til brunns að bera," segir Rósalind. „Ég sendi til dæmis fimm mismunandi lög sem flutt voru við ólíkar aðstæður."

Alls hlutu sex söngvarar frá fimm löndum fyrstu verðlaun í flokki atvinnumanna í keppninni í ár og koma þeir allir fram á tónleikum í Carnegie Hall í janúar. Rósalind segist vera byrjuð að vinna úr efnisskránni fyrir tónleikana. „Ég er með aðeins of margar aríur og þarf að grisja þær aðeins niður áður en ég tek endanlega ákvörðun."

Rósalind Gísladóttir er þaulreynd söngkona. Hún lauk 8. stigi frá Söngskólanum í Reykjavík árið 1999 og hélt til framhaldsnáms á Spáni, auk þess að hafa sótt masterklassa og söngtíma hjá virtum söngvurum og söngkennurum. Hún hefur sungið með ýmsum kórum og tekið þátt í ýmsum óperuuppfærslum, nú síðast Töfraflautunni í Hörpu.

Rósalind syngur með sönghópnum Orfeus og söngkvartettinum Opus og er líka líka félagi í Óp-hópnum.

Hún er nýkomin frá New York þar sem hún tók þátt í gjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, á listahátíðinni Performa 2011. Hann gekk út á að tíu söngvarar sungu lokaaríuna úr Brúðkaupi Fígarós í í tólf klukkustundir samfleytt. Rósalind segir það hafa verið mikið ævintýri.

„Það er eiginlega ekki hægt að lýsa þessari upplifun. Þetta var auðvitað erfitt meðan á þessu stóð, stundum flaug tíminn áfram en síðan var eins og hann stæði í stað. Undir lokin var kominn mikill fjöldi manns sem hvatti okkur áfram með lófaklappi og hrópum, þetta var mjög geggjuð stemning. Ég hugsa að enginn söngkennari mæli með því að syngja í tólf klukkustundir samfleytt og geri ekki ráð fyrir að endurtaka leikinn en ég hefði ekki viljað missa af þessu heldur," sagði Rósalind í samtali við Fréttablaðið.

Nýlegar fréttir

mið. 22. feb. 2012    Halldóra K. Magnúsdóttir ráðin skólastjóri
mið. 22. feb. 2012    Upplýsingar óskast um skemmdarvarga
mið. 22. feb. 2012    Metnaðarfullir búningar á öskudaginn!
mið. 22. feb. 2012    Þorrablót í Hópsskóla
mið. 22. feb. 2012    Sögðu sögur af afa Bjarna Ben
mið. 22. feb. 2012    Allt verður að gulli í Greip
mið. 22. feb. 2012    Að loknum lestrarspretti
mið. 22. feb. 2012    Nýtt sundnámskeið UMFG
mið. 22. feb. 2012    Fiskisalt endurnýtt í hálkuvarnir
þri. 21. feb. 2012    Yfirlýsing aðalstjórnar UMFG vegna íþróttamannvirkja
þri. 21. feb. 2012    Öskudagsball í Þrumunni
þri. 21. feb. 2012    Skólablöðin komin á vefsíðuna!
þri. 21. feb. 2012    Listaverk nemenda í Miðgarði
þri. 21. feb. 2012    Öskudagur á morgun í skólanum!
þri. 21. feb. 2012    Góðverkavika á Króki
þri. 21. feb. 2012    Friðargangan vekur athygli Friðarsamtaka bæjarstjóra
mán. 20. feb. 2012    Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins milliliðalaust á Bryggjunni
þri. 21. feb. 2012    Vita- og vísnahátíð í Garðinum
mán. 20. feb. 2012    Stærðfræðidagur á Laut
mán. 20. feb. 2012    Golfæfingar í Hópinu á sunnudögum
mán. 20. feb. 2012    Kalda vatnið tekið af Austurhópi
mán. 20. feb. 2012    Lúllu löggubangsi heimsótti Laut
mán. 20. feb. 2012    Athyglisverð tilraun í tannverndarviku á Laut
mán. 20. feb. 2012    Skemmtilegt tannverndarverkefni
mán. 20. feb. 2012    Martak - Þróa lausnir fyrir matvælaiðnaðinn