Fundur nr. 4

4. fundur Fræðslunefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 6. desember 2011 og hófst hann kl. 17:00


Fundinn sátu:

Klara Halldórsdóttir (KH), Þórunn Svava Róbertsdóttir (ÞSR), Guðrún Atladóttir (GA), Stefanía Stefánsdóttir (SS), Guðbjörg Gerður Gylfadóttir (GGG), Pálmi Hafþór Ingólfsson, Albína Unndórsdóttir, Fríða Egilsdóttir, Hulda Jóhannsdóttir (HJ) og Inga Þórðardóttir.

Fundargerð ritaði: Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri

Róbert ritar fundargerð í fjarveru Nökkva Más.

Dagskrá:

1. 1111039 - Sjálfsmatsskýrsla Lautar 2010 - 2011
Albína leikskólastjóri fór yfir endurmat á starfsáætlun og sjálfsmatsskýrslu Lautar fyrir árin 2010 - 2011.
Nefndin lýsir yfir ánægju með skýrsluna í heild sinni.

2. 1111041 - Niðurstöður samræmdra könnunarprófa í 4. 7. og 10. bekk í Grunnskóla Grindavíkur haustið 2011
Róbert fór yfir samantekt Nökkva Más á niðurstöðum samræmdra prófa í 4., 7. og 10. bekk undanfarin 5 ár.

Nefndin þakkar fyrir greinargóða framsetningu. Niðurstöðurnar gefa glögga mynd af stöðu skólans í samanburði við önnur svæði á landinu undanfarin ár. Niðurstöðurnar eru hvatning fyrir skólasamfélagið í Grindavík til að stefna hærra og setja sér skýr markmið.

Nefndin hefur áhuga á að fá sambærilegan samanburð á líðan nemenda og kanna hvort fylgni er milli líðan nemenda og árangurs á samræmdum prófum.

3. 1111040 - Sjálfsmatsskýrsla Grunnskóla Grindavíkur 2010 - 2011

Pálmi fór yfir stöðu við vinnu Sjálfsmatsskýrslu Grunnskóla Grindavíkur 2010-2011 og óskar eftir fresti til næsta fundar til að klára skýrsluna.

Samþykkt samhljóða.

4. 1112018 - Breytingar á stjórnun í Grunnskóla Grindavíkur.
Pálmi gerði grein fyrir skipulagi stjórnunar við skólann til skólaloka og breytingum á kennslu.
Stjórnendateymið verður eftirfarandi út skólaárið.
Pálmi Ingólfsson skólastjóri.
Ásrún Kristinsdóttir deildarstjóri 1. - 3.bekkjar í Hópsskóla og staðgengill skólastjóra.
María Eir Magnúsdóttir deildarstjóri sérkennslu.
Ægir Viktorsson deildarstjóri unglingastigs/önnur verkefni.
Kristín Mogensen deildarstjóri miðstigs og námsvers.

Nefndin þakkar skýringarnar og lýsir yfir fullum stuðningi við nýtt stjórnendateymi skólans.
Nefndin þakkar Páli Leó Jónssyni fráfarandi skólastjóra samstarfið undanfarin ár og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.

5. 1112019 - Tillaga að samstarfsverkefni skólaskrifstofu og leik- og grunnskóla í Grindavík um þróunarsveitarfélag í gerð nýrra skólanámskráa og endurgerð á skólastefnu Grindavíkurbæjar.

Hulda leggur til að skólaskrifstofan hafi forystu um að sækja um styrk til mennta- og menningarráðuneytisins um að gerast þróunarsveitarfélag í gerð nýrra skólanámskráa og endurmats á skólastefnu Grindavíkurbæjar á grundvelli nýrra Aðalnámskráa fyrir leik- og grunnskóla.
Nefndin tekur jákvætt í tillöguna og telur mikilvægt að gert verði ráð fyrir fjármagni til verkefnisins á næsta ári.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:40