Næsta miðvikudag kl. 20:00 verða Jólatónleikar í Grindavíkurkirkju. Þar mun Kór Grindavíkurkirkju undir stjórn organista flytja jólalög úr ýmsum áttum, bæði innlend og erlend. Einsöngvari verður Hulda Björk Garðarsdóttir.
Helga Bryndís Magnúsdóttir organisti flytur orgelverk eftir César Franck.
Hulda Björk syngur um þessar mundir í uppfærslu Íslensku óperunnar á Töfraflautunni, á minningartónleikum um Freddy Mercury í Hörpu og mun einnig syngja á Frostrósartónleikum ásamt Syssel Kirkjebo svo eitthvað sé nefnt. Á tónleikunum syngur hún ýmis jólalög bæði ein og með kórnum.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.00 og er aðgangseyrir kr. 1000, en ókeypis er fyrir börn og eldri borgara. Miðar verða seldir við innganginn en einnig verður hægt að kaupa miða í forsölu í Blómakoti.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
