Hönnunarkeppnin Stíll var haldin laugardaginn 19.nóvember með pompi og prakt í veislusalnum við Skógarhlíð. Stíll er keppni á milli félagsmiðstöðva þar sem keppt er í hárgreiðslu, förðun og fatahönnun út frá ákveðnu þema, en þemað í ár var Ævintýri. Þær Unnur, Katla og Edda Sól kepptu fyrir hönd Þrumunnar eftir að hafa unnið undankeppni Stíls í Garðinum fyrir ekki svo löngu. Stúlkurnar byggðu hönnun sína á ævintýrinu um litlu hafmeyjuna.
Mikið af efniviðnum kom úr sjónum, en hafmeyjan klæddist t.d. fiskroði, kuðungum og krossfiskum.
Stúlkurnar gerðu sér lítið fyrir og komust á verðlaunapall fyrir vinnumöppuna sína. Hver hópur þarf að skila inn vinnumöppu þar sem hugmyndin á bakvið hönnunina er útskýrð, verkferlar eru greindir og myndir af hári, hönnun og förðun eru sýndar. Dómnefndin sagði möppuna frá Þrumunni sýna fram á gríðar góða samvinnu hópsins.
Á meðan dómarar réðu ráðum sínum var boðið upp á skemmtiatriði frá nokkrum félagsmiðstöðvum og m.a. stigu þeir Ari og Stefán á stokk fyrir hönd Þrumunnar og tóku frumsamið lag eftir Ara. Ari rappaði og Stefán sá um undirspil á gítar.
Þess má geta að sigurvegarar í hönnunarkeppninni komu frá Zero, félagsmiðstöðinni á Flúðum.
Við Grindvíkingar getum verið stolt af unglingunum okkar sem sýndu það og sönnuðu um helgina hversu skapandi og flott þau geta verið. Til hamingju.
Ari og Stefán tóku lagið fyrir gesti.
Töluverður undirbúningur er fyrir svona keppni og hér er byrjað á því að skreyta neglur.
Svo fætur.