Breytingar á deiliskipulagsáætlunum fyrir Hesthúsabyggð

Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 auglýsir Grindavíkurbær hér með kynningu á tillögu að breyttu deiliskipulagi hesthúsahverfis.

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir hesthúsabyggð. Deiliskipulagstillagan er sett fram á uppdrætti með greinargerð. Þar er kveðið á um öll atriði deiliskipulags í samræmi við skipulagslög og skipulagsreglugerð, s.s. byggingarreiti, nýtingarhlutfall, hæð húsa, útfærslu opinna svæða o.s.frv.

Við gerð tillögunnar hefur verið leitast við að viðhalda þeim ákvæðum sem voru hluti af upphaflegu skipulagi frá 2006 en auk þess er nú komið fyrir aðstöðu fyrir hestaleigu, stækkun lóðar fyrir félagsheimili / reiðhöll. Deiliskipulagsskilmálar gerðir ýtarlegri til að samræma og bæta umgengni um skipulagssvæðið, stækkun svæðis er 28.798m².

Við gildistöku deiliskipulagsins fellur eldra deiliskipulag Hesthúsahverfis úr gildi. Tillagan liggur frammi á bæjarskrifstofum Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62, frá 19. nóvember 2011 til og með 2. janúar 2012. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu Grindavíkurbæjar, www.grindavik.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega á bæjarskrifstofu til skipulags- og umhverfissviðs eða á netfangið ingvar@grindavik.is, eigi síðar en 2. janúar 2012. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.

Ingvar Þór Gunnlaugsson
sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.