Grindavíkurbær hefur falið Alta að hefja vinnu við gerð deiliskipulags miðbæjar Grindavíkur. Deiliskipulagið á að taka mið að þeim áherslum sem mótaðar voru í drögum skipulagsstefnu miðkjarna Grindavíkur sem kynnti á opnum íbúafundi þann 25. maí 2011.
Markmið Grindavíkurbæjar er að uppbygging stuðli að því að:
• Gera Grindavík að aðlaðandi viðkomustað ferðamanna.
• Bæta umferðarflæði í gegnum miðbæinn og niður á höfn.
• Skapa heildstæðan og aðlaðandi miðbæ sem styður við áform um uppbyggingu við Festi.
• Tengja saman lykilstaði miðbæ - höfn - tjaldstæði.
• Almenningsrými endurspegla sérstöðu Grindavíkur.
• Að fjárfestingar við uppbyggingu auki ekki rekstrarkostnað sveitarfélagsins og hvetji til aukinnar
uppbyggingu annarra aðila í miðkjarna Grindavíkur.
Skipulagsvæðið er um 4,6 ha að stærð og nær frá mótum Víkurbrautar og Gerðavöllum. Til suðurs er fylgt lóðamörkum sem mæta Víkurbraut að undanskyldri lóð Víkurbrautar 31 sem er innan marka. Á móts við syrði lóðamörk Landsbankans við Víkurbraut 36, fylgja mörkin lóðamörkum til austurs að Túngötu. Þaðan er miðlínu fylgt að Ránargötu. Lóðamörk Kirkjunnar og Safnaðarheimilisins móta deiliskipulagsvæðið að Austurvegi. Þaðan móta mörk deiliskipulags Íþróttasvæðisins og loks deiliskipulag milli Víkurbrautar og Stamphólsvegar.
Í auglýstri tillögu að aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 eru settar áherslur sem deiliskipulagsvinna mun taka mið að eins og að æskilegt sé að byggð verði að einhverju leyti blönduð og þéttust næst miðbæ, án þess þó að stinga í stúf við núverandi byggð. Vel skipulagt nokkuð þétt miðbæjarsvæði stuðli t.d. að myndarlegum bæjarbrag og aukinni verslun innan bæjar og aukinni sjálfbærni. Auglýst aðalskipulagstillaga gerir ráð fyrir fjórum landnotkunarflokkum innan deiliskipulagsmarka; miðsvæði, verslunar og þjónustusvæði, svæði fyrir þjónustustofnanir og opið svæði til sérstakra nota.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
