
Tillaga að deiliskipulagi fyrir iðnaðarsvæði við Eyjabakka , auglýsist hér með skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Forkynning tillögunnar fór fram frá 6. - 15. júlí 2011.
Deiliskipulagstillagan er í samræmi við Aðalskipulag Grindavíkur 2010-2030 sem auglýst var skv. 18. gr. Skipulags og byggingarlaga nr. 73/1997 á tímabilinu frá 9. apríl til 23. maí 2011.
Deiliskipulagssvæðið afmarkast af Nesvegi til austurs og suðurs. Til norðurs er Austurvegur og til vesturs er Bakkalág og smábátahöfnin. Norðan Bakkalágar eru Hópsbæirnir og þjóðminjaverndarsvæði tengt þeim. Stærð skipulagssvæðisins er 33 ha.
Hægt er að nálgast tillöguna á skrifstofu Grindavíkurbæjar Víkurbraut 62, 240 Grindavík og á heimasíðu bæjarins www.grindavik.is.
Þeir sem vilja koma á framfæri ábendingum eða athugasemdum við deiliskipulagið skulu senda þær, eigi síðar en 19. október nk., til Tæknideildar Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62, 240 Grindavík eða með tölvupósti á póstfangið ingvar@grindavik.is.
Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
