Miðar sem Þrumann fékk úthlutað á SAMFÉS-hátíðina voru fljótir að seljast. Óskað hefur verið eftir viðbótarmiðum. Það mun ekki skýrast fyrr en föstudaginn, þ. 18. febrúar hvort við fáum einhverja miða. Félagsmiðstöðvar áttu að staðfesta miðakaup í gær og borga miðana í síðasta lagi n.k. fimmtudag. Hversu margir óseldir miðar verða kemur því ekki í ljós fyrr en á föstudagsmorgun. Skulum við því vona það besta.