524. fundur
Skipulags- og byggingarnefndar Grindavíkur var
haldinn á skrifstofu byggingafulltrúa,
miðvikudaginn 12. janúar 2011 og hófst hann kl. 18:00
Fundinn sátu:
Unnar Á Magnússon (UÁM), Vilhjálmur Árnason (VÁ), Jón Emil Halldórsson (JEH), Helgi Þór Guðmundsson (HÞG) og Guðmundur Einarsson (GE).
Fundargerð ritaði: Sigmar B Árnason, Byggingarfulltrúi
Dagskrá:
1. 1009039 - Ólöglegar framkvæmdir
Framkvæmdaraðila hefur áður verið afhent bréf þess efnis að hann fengi 30 daga frest til að skila inn tilskyldum gögnum. Framkvæmdaraðili hefur ekki sinnt þeirri beiðni. Því felur skipulags- og byggingarnefnd byggingarfulltrúa að senda framkvæmdaraðilanum tilkynningu um að innheimtar verði dagsektir upp á 100.000,-kr. pr. dag verði ekki tilskyldum gögnum skilað til bygginarfulltrúa eða framkvæmdin fjarlægð innan 14 daga.
2. 1101006 - Umsókn um byggingarleyfi Austurvegur 5
Nefndin samþykkir erindið. Byggingafulltrúi mun gefa út formlegt byggingarleyfi þegar að tilskyldum gögnum hefur verið skilað inn.
3. 1012069 - Umsókn um byggingarleyfi Austurhóp 18
Nefndin samþykkir erindið. Byggingafulltrúi mun gefa út formlegt byggingarleyfi þegar að tilskyldum gögnum hefur verið skilað inn.
4. 1012068 - Umsókn um byggingarleyfi Austurhóp 14
Nefndin samþykkir erindið. Byggingafulltrúi mun gefa út formlegt byggingarleyfi þegar að tilskyldum gögnum hefur verið skilað inn.
5. 1101010 - Umsókn um byggingarleyfi Staðarhraun 24a
Nefndin samþykkir erindið. Byggingafulltrúi mun gefa út formlegt byggingarleyfi þegar að tilskyldum gögnum hefur verið skilað inn.
6. 1010100 - Umsókn um byggingarleyfi Tangasund 4
Nefndin samþykkir erindið. Byggingafulltrúi mun gefa út formlegt byggingarleyfi þegar að tilskyldum gögnum hefur verið skilað inn.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:00