Ár 2010, miðvikudaginn 10. nóvember var haldinn 164. fundur íþrótta- og æskulýðsnefndar Grindavíkur. Fundurinn var haldinn á bæjarskrifstofunni og hófst kl. 16:30.
Mættir voru: Magnús Már Jakobsson formaður, Jóna Rut Jónsdóttir, Þórunn Erlingsdóttir, Benóný Harðarson og Helena Bjarndís Bjarnadóttir. Jafnframt sat fundinn Kristinn J. Reimarsson frístunda- og menningarfulltrúi sem ritaði fundargerð.
Magnús Már setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
Þetta gerðist:
1) 0904053 - Samningar við deildir UMFG.
Viðræður við íþrótta- og tómstundafélög auk skólastjóra tónlistarskólans v/ endurnýjunar á samningum.
a. Kl. 16:30 mætti til viðræðna fulltrúi fimleikadeildar UMFG, Valgerður Jennýjar.
b. Kl. 17:00 mætti til viðræðna fulltrúi æskulýðsstarfs Grindavíkurkirkju, sr. Elínborg Gísladóttir.
c. Kl. 17:30 mættu til viðræðna fulltrúar sunddeildar UMFG, María Jóhannesdóttir, Jóhann Júlíusson og Sveinn Árnason.
d. Kl. 18:00 mætti til viðræðna fulltrúi Golfklúbbs Grindavíkur, Páll Erlingsson.
e. Kl. 18:30 mættu til viðræðna fulltrúar körfuknattleiksdeildar UMFG, Eyjólfur Þór Guðlaugsson, Ágústa Sigurgeirsdóttir, Rannveig Böðvarsdóttir, Emil Ingólfsson og Magnús Andri Hjaltason.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00
Magnús Már Jakobsson
Jóna Rut Jónsdóttir
Þórunn Erlingsdóttir
Benóný Harðarson
Helena Bjarndís Bjarnadóttir