STÍLL 2010 - Myrkriđ í ađalkeppnina

  • Fréttir frá Ţrumunni
  • 3. nóvember 2010

Undankeppni SAMSUÐ fyrir Stíl 2010 fór fram í Þrumunni sl. föstudagskvöld.  Sex lið voru mætt til leiks, þrjú frá Þrumunni, Grindavík, tvö frá Borunni,Vogum og eitt frá Skýjaborg, Sandgerði. Keppnin tókst mjög vel og liðin mættu vel undirbúin til leiks. Ekki var krýndur eiginlegur sigurvegari þetta kvöld því einungis var verið að velja það lið sem fær að fara á lokakeppnina sem fer fram í Smáralind þann 20. nóvember n.k. Eitt lið frá hverri félagsmiðstöð á sæti á lokakeppninni.

Frá Þrumunni var það liðið "Myrkrið" sem náði því að komast í lokakeppnina en það lið skipa; Guðný Eva Birgisdóttir, Kristín Ragnheiður Eiríksdóttir, Margrét Rut Reynisdóttir og Íris Ósk Hallgrímsdóttir. Þær eru allar í 8. bekk.

Búið er að setja nokkrar myndir frá keppninni hér inn á síðuna og má sjá þær með því að smella á myndir hér til vinstri á síðunni.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir