Undankeppni Stíls í Ţrumunni

  • Fréttir frá Ţrumunni
  • 27. október 2010

Undankeppni Stíls 2010, sem átti að fara fram í Sandgerði í kvöld, hefur verið færð til Grindavíkur og mun fara fram í félagsmiðstöðinni Þrumunni föstudaginn 29. október. Húsið opnar kl. 18:00 fyrir keppendur. Byrjað verður að hleypa áhorfendum inn kl. 19:45 en keppni hefst stundvíslega kl. 20:00. Sjö lið eru skráð til leiks; þrjú frá Grindavík, þrjú frá Vogum og eitt frá Sandgerði. Eitt lið frá hverju sveitarfélagi kemst svo í aðalkeppnina sem fer fram í Smáralind laugardaginn 20. nóvember.

Sem fyrr er unnið út frá ákveðnu þema og er þema keppninnar í ár: TILFINNINGAR

Þemað er afar opið og gefur tækifæri til að láta hugmyndaflugið njóta sín.
Mjög mikilvegt er að gera góða lýsingu af heildarferli hönnunarinnar og skrá það niður í þar til gerða möppu sem dómarar nota við mat sitt. Það sem þarf að koma fram í möppu:
• Skrá niður eða gera teikningar með útskýringum af þróun ferlisins.
• Hugmyndin á bak við flíkina, hárið og förðunina.
• Hvernig hönnunin tengist þemanu.
• Hvaða efni er verið að nota og hvaðan eru þau fengin - taka skal fram hver gaf eða hver lánaði.
• Hvaða kostnaður féll til (kvittanir þurfa að fylgja).

Vinsmalegast athugið að mappan má ekki vera merkt á einn né annan hátt. Hvorki með nafni keppenda né nafni félagsmiðstöðvar. Þegar mappan er afhent verður hún merkt með númeri sem er hið sama og liðið fær úthlutað á keppnisdeginum.
Leiðbeinendur eða umsjónaaðilar hópsins eru vinsamlegast beðnir um að stilla efniskostnaði í hóf, gott er að miða við að heildarkostnaður fari ekki yfir 15.000 kr.
Einnig skal gæta þess að módelin séu klædd innan almennra siðferðismarka

Reglur

1. Að klæðnaður sé innan siðferðilegra marka. Miðað skal við að a.m.k. 1/3 hluti líkamans skuli vera hulinn flík.
2. Hver félagsmiðstöð má senda eitt lið, skipað 2 til 4 einstaklingum (þar með talið módelið) úr 8.-10. bekk í grunnskóla.
3. Öll vinna keppenda við módel verður að fara fram á svæðinu, ekki er heimilt að undirbúa módelið á neinn hátt áður en að keppnin hefst.
4. Á keppnisstað verða þátttakendur að standa sjálfir skil á sinni hönnun/sköpun og utanaðkomandi aðstoð er bönnuð (svo sem starfsmenn, foreldrar eða aðrir).
5. Teikningar og útskýringar verða að afhendast umsjónarmönnum keppninnar áður en keppni hefst (við komu liðs í Íþróttahús Smárans).
6. Mikilvægt er að starfsmenn félagsmiðstöðva athugi og fylgist með efniskostnaði keppnisliða og reyni að stýra því að hann sé innan skynsamlegra marka. Ágætt er að miða við að heildarkostnaður fari ekki upp fyrir 15.000 krónur á hóp.
7. Í byrjun nóvember verða send til ykkar eyðublöð sem ætluð eru til að skrifa niður hvaðan efni eða hlutir í búning eru fengin og hvað þau kostuðu. Afrit af kvittunum skal fylgja blaðinu. Séu hlutir fengnir gefins eða lánuð skal tekið fram hvar/hver hafi gefið/lánað efnið eða hlutinn.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir