Í gær var haldið diskótek í Þrumunni fyrir börn í 5. - 7. bekk. Aðsókn var með ágætum og mikið stuð á krökkunum. Mikið dansað og einnig var farið í nokkra skemmtilega samkvæmisleiki. Það voru nemendur í Þrumuráði ásamt starfsfólki sem stýrðu skemmtuninni og m.a. sáu nemendur á unglingastigi sem eru í svokölluð DJ-ráði Þrumunnar um tónlistina.
Hér fylgja nokkrar myndir af skemmtuninni.