Fundur nr. 1237

1237. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn á skrifstofu bæjarstjóra, miðvikudaginn 1. september 2010 og hófst hann kl. 17:00

Fundinn sátu:
Guðmundur L. Pálsson (GLP), Bryndís Gunnlaugsdóttir (BG), Kristín María Birgisdóttir (KMB) og Páll Valur Björnsson (PVB).

Fundargerð ritaði:  Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri

Dagskrá:

1. 1005003 - Námsframboð á unglingastigi næsta skólaár.
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að málinu verði bætt á dagskrá.

Samþykkt samhljóða.

Kristinn Reimarsson, frístunda- og menningarfulltrúi og Pálmi Ingólfsson deildarstjóri í Grunnskóla Grindavíkur koma til fundarins og kynna tillögu að Fjölsmiðju, ásamt öðru námsframboði á unglingastigi.

Bæjarráð samþykkir að leggja 600 þúsund til verkefnisins í efnis- og stofnkostnað.
Vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar á sérstökum lykli fyrir Fjölsmiðju.

2. 1008028 - Ársskýrsla og endurskoðaður ársreikningur 2009 fyrir Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum ses.
Lagt fram.

3. 1008029 - Ósk um kaup á líkamsræktarstöðinni Orkubúið.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.

Óvíst er hvenær verður farið í breytingar á húsnæði sundlaugarinnar fyrir líkamsræktarstöð.

4. 1008030 - Boðun á hafnasambandsþing.
Bæjarráð tilnefnir Sverrir Vilbergsson hafnarstjóra og Pál Gíslason formann hafnarstjórar til setu á hafnasambandsþinginu, og til vara Eirík Dagbjartsson og Hilmar Helgason.

5. 1008034 - FSS óska eftir viðræðum við bæjarstjórn Grindavíkurbæjar um að FSS fái til rekstrar og eftirlits ysta hluta Reykjanessins.
Bæjarráð vekur athygli á því að Grindavíkurbær hefur unnið metnaðarfulla auðlindastefnu sem felur m.a. í sér gerð Eldfjallagarðs á Reykjanesskaga. Hugmyndir um jarðminjagarð á Reykjanesi falla vel að þeirri hugmyndafræði.
Grindavíkurbær er reiðubúinn að vinna með fleiri aðilum að framgangi Eldfjallagarðs.

Bæjarráð getur hins vegar ekki falið öðrum aðilum en sveitarfélaginu svæðið til rekstrar og eftirlits.

6. 1008071 - Aðalfundur 24. ágúst 2010
Ársskýrsla Ferðamálasamtaka Suðurnesja og Markaðsstofu Suðurnesja lögð fram.

7. 1008037 - Styrkur til Grindavíkurkirkju vegna æskulýðsstarfs á vegum KFUM og KFUK.
Styrkur til Grindavíkurkirkju vegna æskulýðsstarfs er á fjárhagsáætlun ársins 2010.

8. 1008043 - Brýn þörf á auknu húsnæði við tónlistarskólann næsta vetur.
Bæjarstjóra falið að afgreiða málið.

9. 1008048 - Reykjanes Cup. Beiðni um styrk
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.

10. 1008056 - Tilnefning í Menningarráð Suðurnesja.
Bæjarráð tilnefnir Bryndísi Gunnlaugsdóttur og Kristinn Reimarsson til vara.

11. 1008070 - Akstur fatlaðra skólabarna skólaárið 2010 - 2011
Bæjarráð samþykkir að taka lægsta tilboði.

Áætlaður kostnaður er um 6 milljónir á skólaárinu 2010-2011. Vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.

12. 1008064 - Færsla á lóðum og lendum, álit Reikningsskila- og upplýsinganefndar nr 2/2010
Fyrir fundinum liggur tillaga fjármálastjóra að nýjum stofn efnahagsreikningi fyrir árið 2010 í samræmi við álit Reikningsskila- og upplýsinganefndar nr. 2/2010.

Við breytinguna hækkar eigið fé eignasjóðs um 661.174 þús. kr og verður 411.744 þús. kr.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

13. 1006015 - Sameining grunnskóla í Grindavík
Málið var áður á dagskrá fundar bæjarráðs þann 21. júlí síðastliðinn þar sem óskað var eftir gögnum til að styðja kröfu um 12 mánaða biðlaun. Þau gögn hafa nú borist.

Bæjarráð samþykkir að greiða fráfarandi skólastjóra Hópsskóla 12 mánaða biðlaun í stað 6 mánaða.

Auknum launakostnaði vísað til endurskoðunar á fjárhagsáætlun ársins 2010 og áætlunar ársins 2011.

14. 1008007 - Beiðni um húsnæði fyrir félag handverkafólks í Grindavík
Bæjarstjóri lagði fram drög að samkomulagi við Félag handverkafólks.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

15. 1004030 - Gjaldskrá byggingaleyfis- og þjónustugjalda í Grindavíkurbæ
Tillaga skipulags- og bygginganefndar lögð fram.

Tillögu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

16. 1004035 - Ósk um breytingu á skráningu Ásabraut 15 og 18 úr einbýlishúsi í tvíbýlishús.
Bæjarráð staðfestir ákvörðun skipulags- og bygginganefndar.

17. 0907039 - Skipulagsdagar leikskólanna.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.

18. 1006048 - Breyting á opnunartíma sundlaugar og íþróttahúss
Lagt fram.

19. 1008036 - 613.fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Fundargerðin er lögð fram.

20. 0908036 - Fundur í fjallskilanefnd.
Fundargerðin er lögð fram.

21. 1008009F - Íþrótta- og æskulýðsnefnd Grindavíkur - 160
Fundargerðin er lögð fram.

22. 1008011F - Fræðslu- og uppeldisnefnd Grindavíkur - 62
Fundargerðin er lögð fram.

23. 1008013F - Menningar- og bókasafnsnefnd Grindavíkur - 68
Fundargerðin er lögð fram.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00