Grindvíkingur vikunnar - Guđrún Jóna Magnúsdóttir
Grindvíkingur vikunnar - Guđrún Jóna Magnúsdóttir

Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum opnaði útibú í Grindavík í sumar að Víkurbraut 56. Þar er boðið upp á fjölbreytt nám sem Grindvíkingar eru hvattir til að kynna sér. Guðrún Jóna Magnúsdóttir var ráðin verkefnastjóri og svarar hún nokkrum spurningum sem Grindvíkingur vikunnar, sem byrjar á ný eftir sumarfrí.

Nafn?  Guðrún Jóna Magnúsdóttir.
Fjölskylduhagir? Gift Óla Birni Björgvinssyni og saman eigum við fjögur börn.
Starf? Verkefnisstjóri og náms- og starfsráðgjafi hjá MSS í Grindavík og MA-nemi í náms- og starfráðgjöf við HÍ.
Uppáhalds-
...maturinn?
Hryggurinn hennar mömmu klikkar aldrei.
...drykkurinn? Vatn.
...staðurinn? Grindavík.
...leikarinn? Frank Hvam.
...lagið? Popplag í G-dúr.
...söngvarinn/hljómsveitin? Michael Bublé.
...fuglinn? Lóan.
...liturinn? Blár.
...bókin? Leitin að tilgangi lífsins e. Viktor Frankl.
...bíómyndin? Little miss sunshine.
...íþróttamaðurinn? Erla Ásgeirsdóttir skíðakona úr Breiðabliki.
...liðið? Grindavík.
Hvert er þitt lífs mottó? Að læra svo lengi sem ég lifi.
Hvað er best við Grindavík? Fólkið.
Fyrir hverja er MSS? MSS er fyrir alla unga sem aldna sem vilja efla sig í lífi og starfi.
Hvað býður MSS upp á nú á haustönn? Nám í heimabyggð fyrir þá sem eru í námi við háskólann á Akureyri í gegnum fjarfundabúnað, áhugasviðskannanir, Menntastoðir, skrifstofuskólann, tölvunámskeið, tölvunámskeið 60+, enskunámskeið, norskunámskeið, silfursmíði, íslenskunám fyrir útlendinga 1-5, tarotnámskeið, sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir ungar konar á öllum aldri, námsleiðin sterkari starfsmaður, saumanámskeið, prjónanámskeið og fluguhnýtinganámskeið. Í samstarfi við Fisktækniskólann er boðið upp á Handflökun á þorski og ýsu, handflökun og skurð á laxi og silungi, hnífar og skerpingar, innra eftirlit - HACCP, veiðitækni, vinnuvistfræði fyrir fiskvinnslufólk og sjómenn, meðferð afla fyrir strandveiðimenn og skipstjórnarréttindi fyrir 12 m. báta og styttri (pungapróf).
Hvaða þýðingu hefur það fyrir Grindavík að fá menntastofnun sem þessa hingað? Það er gríðarlega mikilvægt fyrir Grindvíkinga að geta sótt sér menntun í heimabyggð hvort sem er á sviði tómstunda eða í tengslum við áframhaldandi nám. Margir sem stofnað hafa fjölskyldu hafa sett það fyrir sig að þurfa að keyra langar vegalengdir en nú er það úr sögunni með tilkomu MSS í Grindavík. Fisktækniskólinn er einnig stofnun sem á mikið erindi í bæjarfélagið sem er jú fyrst og fremst útgerðarbær og margir geta sótt sér meiri þekkingu þar.
Hver eru þín helstu áhugamál? Ferðalög, skíði, knattspyrna og stangveiði.
Eitthvað að lokum? Mig langar að nota tækifærið og bjóða alla Grindvíkinga velkomna til okkar hjá MSS og Fisktækniskólanum að Víkurbraut 56 og á vefnum mss.is er hægt að fá nánari upplýsingar um námskeiðin sem eru í boði.

Nýlegar fréttir

fim. 9. feb. 2012    Starf ađstođarleikskólastjóra viđ leikskólann Laut í Grindavík
fim. 9. feb. 2012    Samskiptadagar í Grunnskólanum
fim. 9. feb. 2012    Álagningarseđlar fasteignagjalda fyrir áriđ 2012
fim. 9. feb. 2012    Góđar gjafir Kvenfélags Grindavíkur
miđ. 8. feb. 2012    Svavar Knútur á Bryggjunni
miđ. 8. feb. 2012    Mikiđ um ađ vera í körfuboltanum
miđ. 8. feb. 2012    Veiđarfćraţjónustan og Besa framúrskarandi fyrirtćki
miđ. 8. feb. 2012    Ţorrablót á Salthúsinu
miđ. 8. feb. 2012    Ţorrablót á Veitingastofunni Vör
ţri. 7. feb. 2012    Námskeiđ í skyndihjálp í sundlauginni
ţri. 7. feb. 2012    Hestadagur Brimfaxa á laugardaginn
ţri. 7. feb. 2012    Afhentu plakat í tilefni dags leikskólans
ţri. 7. feb. 2012    Viltu taka ţátt í menningarvikunni? Ertu međ ábendingar?
ţri. 7. feb. 2012    Verkalýđsfélag Grindavíkur 75 ára - Afmćliskaffi á sunnudaginn
ţri. 7. feb. 2012    Bullock valinn besti leikmađur 14. umferđar
ţri. 7. feb. 2012    Framhaldsađalfundi frestađ um viku
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Hagnýtt saumanámskeiđ
mán. 6. feb. 2012    Opiđ hús hjá Ţórkötlu
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Námskeiđ í svćđanuddi
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Fyrirlestur um SUSHI
mán. 6. feb. 2012    Finndu eldmóđinn - Spennandi námskeiđ í MSS í Grindavík
mán. 6. feb. 2012    Lasse Qvist semur líklega viđ Grindavík í vikunni
mán. 6. feb. 2012    Bókasafniđ gefur út upplýsingabćkling
mán. 6. feb. 2012    Dagur leikskólans
mán. 6. feb. 2012    Nýr vinnslubúnađur hjá Vísi