518. fundur Skipulags- og byggingarnefndar Grindavíkur haldinn á skrifstofu byggingafulltrúa,
þriðjudaginn 31. ágúst 2010 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Vilhjálmur Árnason (VÁ), Jón Emil Halldórsson (JEH), Helgi Þór Guðmundsson (HÞG), Guðmundur Einarsson (GE) og Bjarni Rúnar Einarsson (BRE).
Fundargerð ritaði: Sigmar B Árnason, Byggingarfulltrúi
Dagskrá:
1. 1008057 - Ósk um breytingu á deiliskipulagi í hesthúsahverfi við Kóngsholt.
Nefndin tekur jákvætt í erindið, en bendir jafnfram á að skilgreina þarf betur hæðir á áföstum hesthúsum.
2. 1008055 - Ósk um umsögn á stækkun lóðar og byggingarleyfi á Seljabót 3Nefndin tekur jákvætt í erindið, en bendir jafnframt á að kvöð er um lagnir á lóðarmörkum.
3. 1007073 - Afnot á lóð við Staðarsund 7
Nefndin tekur jákvætt í erindið, nánari skýring þarf á notkun svæðis ásamt samþykki meðeiganda.
4. 1008049 - Umsókn um byggingarleyfi Hólavellir 13
Nefndin samþykkir erindið. Byggingafulltrúi mun gefa út formlegt byggingarleyfi þegar að tilskyldum gögnum hefur verið skilað inn.
5. 1008047 - Umsókn um byggingarleyfi Bakkalág 15 C
Nefndin samþykkir erindið. Byggingafulltrúi mun gefa út formlegt byggingarleyfi þegar að tilskyldum gögnum hefur verið skilað inn. Guðmundur vék af fundi við afgreiðslu málsins
6. 1008063 - Umsókn um byggingarleyfi Orkubraut 2
Nefndin tekur jákvætt í erindið, en ítrekar fyrri bókun sína frá fundi 516. um útlit byggingana, með að þær séu í sátt við umhverfið og óskar því eftir nánari gögnum sem sína útlit bygginga í umhverfinu.
7. 0905059 - Skotfélag Grindavíkur óskar eftir aðstöðu fyrir félagsmenn til skotæfinga.
Nefndin samþykkir að vinna áfram með skotfélaginu Markmið með staðsetningu á æfingarsvæði.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
