Nýtt fiskveiðiár gengur í garð í dag. Líkt og í fyrra fer stærstur hluti aflamarks í þorskígildum talið til skipa með heimahöfn í Reykjavík, næst mest til Vestmannaeyja, og þar næst Grindavíkur. Alls fer um 34% aflamarks til skipa með heimahöfn á þessum stöðum. Þorbjörn er í 4. sæti fyrirtækja og Þorbjörn í því sjötta með samanlagt um tæp tíu prósent af hluti aflamarks í þorskígildum á landsvísu.
Úthlutað aflamark eftir fyrirtækjum í upphafi fiskveiðiársins 2010/2011 - Hér má sjá þrjú hæstu fyrirtækin og svo stærstu fyrirtækin sem tengjast Grindavík:
1. HB Grandi hf. - 9,83% - 26.577.800 þorskígildi
2. Brim - 6,87% - 18.588.109 þorskígildi
3. Samherji - 6,07% - 16.418.206 þorskígildi
4. Þorbjörn - 5,55% - 15.013.651 þorskígildi
6. Vísir - 4,28% - 11.570.805 þorskígildi
20. Stakkavík - 1,14% - 3.073.443 þorskígildi
23. Gjögur - 1,01% - 2.731.649 þorskígildi
32. Einhamar Seafood 0,52% - 1.416.580 þorskígildi
Alls er úthlutað 288.042 tonnum, samanborið við 310.451 tonn, sem úthlutað var við upphaf líðandi fiskveiðiárs. Úthlutun aflaheimilda ræðst af ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um leyfilegan heildarafla á hverju fiskveiðiári og orsakast þessi skerðing helst af lækkun leyfilegs heildarafla í ýsu og nokkrum flatfisktegundum. Auk þessa er ekki úthlutað aflamarki í úthafsrækju líkt og áður, þar sem þær veiðar hafa verið gefnar frjálsar á næsta fiskveiðiári. Ekki hefur verið gefinn út leyfilegur heildarafli í síld og því er ekki úthlutað aflamarki í síld.
Fiskiskipum í flotanum sem fá úthlutað aflamarki fækkar um 34 á milli ára, ekki er að greina fækkun í einum útgerðarflokki umfram aðra.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
