Fundur nr. 68


Ár 2010, mánudaginn 30. ágúst var haldinn 68. fundur í menningar- og bókasafnsnefnd Grindavíkur. Fundurinn var haldinn á bæjarskrifstofunni og hófst kl. 15:00

Mætt: Valdís Kristinsdóttir formaður, Kristín Gísladóttir og Halldór Lárusson. Einnig sat fundinn Kristinn J. Reimarsson frístunda- og menningarfulltrúi sem ritaði fundargerð.
Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna.

Dagskrá:

1. 1008068 - Málefni bókasafns
Á fundinn mætti Margrét Gísladóttir forstöðumaður bókasafnsins. Kynnti hún fyrir fundarmönnum starfsemi bókasafnsins. Skannaðar voru inn um 500 gamlar ljósmyndir í sumar. Er unnið í því að setja þær myndir inn á veraldarvefinn. Unnið er í því að efla ljósmyndasafnið og er verið að sækja um fleiri styrki til að geta skannað inn fleiri myndir.
Sumarlestur gekk vel. Um 50 krakkar tóku þátt og lásu um 450 bækur. Verðlaunaafhending verður 8. september n.k. á alþjóðadegi læsis.
Bókasafnið býr við slæman húsakost og væntir Margrét þess að nýr meirihluti finni bókasafninu nýjan og varanlegan stað. Nefndin tekur undir orð Margrétar og hvetur bæjaryfirvöld til að taka nú afstöðu til framtíðarlausnar á húsnæðismálum bókasafnsins.

2. 1008069 - Málefni menningar- og bókasafnsnefndar
Kristinn fór yfir helstu málefni sem eru á borði nefndarinnar. Einnig kynnti hann fyrir nefndinni drög að erindisbréfi.

3. 1008067 - Þjóðhátíðarsjóður
Umsóknarfrestur í Þjóðhátíðarsjóð rennur út 31. ágúst. Þess er að vænta að 3 - 5 umsóknir verði sendar í sjóðinn frá aðilum í Grindavík.

4. 0902123 - Viðburða- og menningardagskrá Grindavíkur
Vakin var athygli á því að huga þarf að undirbúningi fyrir baðstofudaga og sagnanótt sem á að vera í nóvember.

Fleira ekki rætt og fundi slitið kl. 16:00.

Valdís Kristinsdóttir
Kristín Gísladóttir
Halldór Lárusson