Fundur í fræðslu- og uppeldisnefnd var haldinn hinn 19. ágúst 2010 á bæjarskrifstofu kl. 17:00.
Mætt: Klara, Þórunn Svava, Eva Björg, Einar Svenin og Sigríður Anna f.h. nefndarinnar. Þá eru mætt Páll Leó frá Grunnskóla Grindavíkur, Albína frá Leikskólanum Laut, Bylgja frá Leikskólanum Króki og Inga frá Tónlistarskóla Grindavíkur. Áheyrarfulltrúar eru Þuríður f.h. grunnskólakennara og Harpa f.h. foreldra. Þá situr Nökkvi Már Jónsson, skólamálafulltrúi fundinn og ritar fundargerð.
1. Mál nr. 1008038 - Starfsáætlun Grunnsólan Grindavíkur.
Skólastjóri reifar starfsáætlun Grunnskóla Grindavíkur sem liggur frammi. Nefndin staðfestir gildistöku starfsáætlunarinnar.
2. Mál nr. 1008040- Starfsáætlun Leikskólans Lautar
Skólastjóri reifar starfsáætlun Leikskólans Lautar sem liggur frammi. Nefndin staðfestir gildistöku starfsáætlunarinnar.
3. Mál nr. 1008041 - Starfsáætlun Leikskólans Króks
Skólastjóri reifar starfsáætlun Leikskólans Króks sem liggur frammi. Nefndin staðfestir gildistöku starfsáætlunarinnar.
4. Mál nr. 1008042 - Málefni Tónlistarskóla Grindavíkur
Skólastjóri reifar starf skólans á vetri komandi. Þá liggur frammi skóladagatal skólans sem er samþykkt.
5. Mál nr. 0907039 - Beiðni um fjölgun starfsdaga á leikskólum sveitarfélagsins
Erindi leikskólastjóra Lautar og Króks liggur frammi þar sem óskað er eftir fjölgun starfsdaga úr þremur í fjóra.
Nefndin samþykkir beiðninni með þeim tilmælum að reynt verði að samræma viðbótarstarfsdag starfsdögum grunnskóla.
6. Mál nr. 1008046 - Úthlutun styrkja úr Þróunarsjóði skóla í Grindvík
Umsagnir eru þrjár talsins. Nefndin óskar eftir að umsækjendur komi á fund nefndrainnar til að kynna verkefnin nánar.
Nökkvi Már víkur af fundi undir þessum lið.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 19:15.
Klara Halldórsdóttir
Sigríður Anna Ólafsdóttir
Þórunn Svava Róbertsdóttir
Einar Sveinn Jónsson
Páll Leó Jónsson
Inga Þórðardóttir
Bylgja Kr. Héðinsdóttir
Albína Unndórsdóttir
Þuríður Gísladóttir
Hrafnhildur Harpa Skúladóttir
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
