Fundur nr.160

Ár 2010, mánudaginn 23. ágúst var haldinn 160. fundur íþrótta- og æskulýðsnefndar Grindavíkur. Fundurinn var haldinn á bæjarskrifstofunni og hófst kl. 20:00.

Mættir voru: Magnús Már Jakobsson formaður, Jóna Rut Jónsdóttir, Þórunn Erlingsdóttir, Benóný Harðarson og Helena Bjarndís Bjarnadóttir. Jafnframt sat fundinn Kristinn J. Reimarsson frístunda- og menningarfulltrúi sem ritaði fundargerð.

Magnús Már setti fund og bauð fundarmenn velkomna.

Þetta gerðist:

Almenn erindi

1. 1006048 - Breyting á opnunartíma sundlaugar og íþróttahúss
Beiðni um umsögn frá bæjarráði, sbr. fundur 1233, liður 31.
Á fundinn mætti Hermann Guðmundsson forstöðumaður íþróttamannvirkja og kynnti hugmyndir sínar. Tillögurnar eru til komnar til að mæta aukinni gæslu í búningsklefum þegar 1. - 3. bekkur er í íþróttum án þess að þurfa bæta við mannskap eða auka við stöðugildi í íþróttahúsinu. Nefndinni þykir það mikil afturför ef loka á sundlauginni á sunnudögum og leggur til að fundin verði önnur lausn á þessu t.d. með því að kanna möguleika á ráðningu starfsmanns í gegnum Vinnumálastofnun eða kanna hvort skólaliðar/stuðningsfulltrúar geti létt undir gæslu á þessum tímum.

2. 1008035 - Niðurröðun æfinga í íþróttamannvirki veturinn 2010/2011
Hermann Guðmundsson forstöðumaður íþróttamannvirkja fór yfir tillögur sínar að úthlutun æfingatíma fyrir íþróttahúsið. Nefndin samþykkir tímaúthlutun fyrir veturinn en samþykkir jafnframt að farið verði í endurskoðun á verklagi við tímaúthlutun í íþróttamannvirkjum bæjarins.

3. 1007059 - Mismunun á aðstöðu - Mismunun deilda
Vísað til nefndarinnar af bæjarráði, sbr. fundur 1234,  liður 11.
Tekið fyrir bréf körfuknattleiksdeildar UMFG frá því 13. júlí 2010. Íþrótta- og æskulýðsnefnd leggur til við bæjarráð að tekin verði til endurskoðunar samningur við aðalstjórn UMFG þar sem Grindavíkurbær greiðir sem svarar 50% starf á aðalskrifstofu UMFG þannig að sá starfsmaður geti nýst til almennra skrifstofustarfa fyrir körfuknattleiksdeildina og jafnvel aðrar deildir. Benóný Harðarson vék af fundi við afgreiðslu málsins.

4. 1007029 - Aðstaða vegna félagsstarfs eldri borgara í Víðihlíð
Beiðni um umsögn, sbr. bæjarráð nr. 1233, liður 5
Tekið fyrir bréf Kristins Reimarsson frístunda- og menningarfulltrúa og Nökkva Más Jónssonar skóla- og félagsmálastjóra þar sem kynntar eru hugmyndir um breytingar á húsnæði í Víðihlíð til að bæta aðstöðu fyrir félagsstarf eldri borgara í Grindavík. Íþrótta- og æskulýðsnefnd fagnar öllum tillögum sem leiða til þess að aðstaða fyrir félagsstarf eldri borgara verði betri. Nefndin leggur til við bæjarráð að ráðist verði í þessar framkvæmdir og ný, endurbætt aðstaða verði tilbúin í upphafi árs 2011.

5. 1003005 - 17. júní 2010
Lagt fram uppgjör knattspyrnudeildar UMFG v/ 17. júní hátíðarhaldanna í Grindavík 2010. Íþrótta- og æskulýðsnefnd þakkar knattspyrnudeildinni fyrir vel heppnaða framkvæmd á hátíðarhöldunum.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 21:30


Magnús Már Jakobsson
Jóna Rut Jónsdóttir
Þórunn Erlingsdóttir
Benóný Harðarson
Helena Bjarndís Bjarnadóttir