Þann 8. september, n.k. er alþjóðlegur dagur læsis, þá minnumst við þess að enn er fjöldinn allur af fullorðnu fólki og stálpuðum börnum víða um heim ólæs! Þá er líka við hæfi að halda uppskeruhátíð Sumarlesturs á Bókasafninu. Þeir krakkar, sem hafa skilað inn lesnum bókum og fært samviskusamlega inn í Lestrardagbókina sína fá viðurkenningarskjal. Þá kemur líka í ljós hverjir þrír mestu lestrahestarnir í hvorum hópi eru og dregið verður í happadrættinu, en einn heppinn þátttakandi fær vinning!
Starfsfólk Bókasafnsins vonar að allir krakkarnir sem voru með í sumarlestrinum geti mætt á uppskeruhátíðina á Bókasafninu, miðvikudaginn 8.september kl.15:00 og haldið þannig upp á dugnaðinn við lesturinn í sumar. Myndin er frá afhendingu viðurkenningarskjala í fyrra
Sjáumst á Bókasafninu - heilsulind hugans!
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
