1236. bæjarráðs Grindavíkur haldinn á skrifstofu bæjarstjóra, miðvikudaginn 18. ágúst 2010 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Guðmundur L. Pálsson (GLP), Bryndís Gunnlaugsdóttir (BG), Kristín María Birgisdóttir (KMB) og Páll Valur Björnsson (PVB).
Fundargerð ritaði: Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 1008001 - Innleiðing á tillögum starfshóps um endurskoðun á lögum og reglum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
Lagt fram.
2. 1008003 - Kynningarefni á DVD fyrir Grindavík
Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.
3. 1008004 - Framtíð Lundar, beiðni um styrk
Bæjarráð vekur athygli á því að verkefnið er styrkt á vettvangi SSS fyrir hönd sveitarfélaganna á Suðurnesjum.
4. 1008017 - Ársfjórðungsleg skil á upplýsingum úr bókhaldi og reikningsskilum sveitarfélaga.
Bæjarráð felur fjármálastjóra að skila umbeðnum gögnum og leggja jafnframt fyrir bæjarráð.
5. 1008016 - Beiðni um styrk vegna nýsköpunarkeppni grunnskóla
Grunnskóli Grindavíkur tekur ekki þátt í verkefninu. Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.
6. 1008015 - Flutningur á málefni fatlaðra til sveitarfélaga.
Bæjarráð tilnefnir bæjarstjóra í verkefnisstjórnina.
7. 1008008 - Ólögleg förgun á gleri.
Lagt fram.
8. 1008012 - Frá Launanefnd sveitarfélaga vegna kjaradeilu við Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna
Lagt fram.
9. 1008022 - Skólavist fatlaðra barna utan lögheimilissveitarfélags.
Bæjarráð samþykkir erindið.
10. 1007015 - Umsókn um námsvist utan lögheimilissveitarfélags.
Bæjarráð samþykkir erindið.
11. 0809029 - Samningur Skólamatur
Bæjarráð samþykkir að gera þriggja ára samning við Skólamat ehf um rekstur mötuneytis fyrir Grunnskóla Grindavíkur á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs.
Bæjarráð samþykkir að hækka gjald vegna skólamats úr 200 í 220 kr. frá og með 1. september næstkomandi.
Bæjarstjóra falið að undirrita samninginn.
12. 1008005 - Umsókn um starf
Bæjarráð þakkar fyrir bréfið, en sem stendur eru engin laus störf hjá bæjarfélaginu.
13. 1008021 - Hagir og líðan ungs fólks 2010
Bæjarráð vísar skýrslunni til umsagnar í félagsmálaráði, íþrótta- og æskulýðsnefnd og fræðslu- og uppeldisnefnd.
Forstöðumenn stofnanna eru hvattir til að kynna skýrsluna fyrir starfsfólki.
14. 1008014 - 612.fundur haldin í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Fundargerðin er lögð fram.
15. 1008013 - 32.aðalfundur Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja sf.
Hörður Guðbrandsson, formaður stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja kom á fundinn og gerði bæjarráði grein fyrir stöðu mála.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:50
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
