Fundur 398. aukafundur bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, mánudaginn 26. júlí 2010 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Bryndís Gunnlaugsdóttir (BG), Páll Jóhann Pálsson (PJP), Þórunn Erlingsdóttir (ÞE), Kristín María Birgisdóttir (KMB), Dagbjartur Willardsson (DW), Vilhjálmur Árnason (VÁ) og Sigurður A Kristmundsson (SAK).
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, fjármálastjóri
Dagskrá:
1. 1006010 - Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar
Til máls tóku: Bryndís og Kristín María
Tillaga
Lagt er til að framlagður ráðningarsamningur við Róbert Ragnarsson verði samþykktur.
Ráðningarsamningurinn er samþykktur samhljóða
Bókun frá minnihluta
Fulltrúar minnihluta S og G lista vilja lýsa yfir ánægju með ráðningu nýs bæjarstjóra. Jafnframt viljum við hrósa vinnubrögðum meirihlutans í ráðningarferlinu þar sem fulltrúa minnihluta var leyft að sitja viðtölin. Þá var gott samráð haft við alla í bæjarstjórn þegar farið var yfir hvaða umsækjandi yrði hæfastur í starfið. Þessum vinnubrögðum ber að fagna og er það einlæg ósk okkar að þau verði viðhöfð allt kjörtímabilið.
Fulltrúar G- og S-lista
Tillaga að bókun bæjarstjórnar
Á bæjarstjórnarfundi í dag, 26. júlí 2010 samþykkti bæjarstjórn Grindavíkur samhljóða að ráða Róbert Ragnarsson sem bæjarstjóra í Grindavík til næstu fjögurra ára. Ráðningarsamningurinn er mjög hagstæður fyrir bæjarfélagið og hefur verið komið til móts við þá gagnrýni er kom fram gagnvart ráðningarsamningum bæjarstjóra á síðasta kjörtímabili. Róbert mun mæta til starfa miðvikudaginn 4. ágúst.
Alls sóttu 56 um starf bæjarstjóra í Grindavík en 5 drógu umsókn sína til baka þegar ljóst var að nöfn umsækjenda yrðu birt. Capacent hafði umsjón með ráðningarferlinu. Fyrirtækið valdi úr þeim hópi fimm hæfustu einstaklingana. Þegar ljóst var hvaða fimm einstaklingar kæmu til greina fundaði bæjarstjórn og voru bæjarstjóraefnin boðuð í viðtöl til Grindavíkur. Aðili frá Capacent stýrði viðtölunum en bæjarráð sat viðtölin og tók þátt í þeim. Þegar öllum viðtölum var lokið hittist bæjarstjórnin aftur og fór yfir umsækjendur. Í framhaldinu voru viðræður teknar upp við Róbert og var mjög ánægjulegt að samkomulag náðist fljótt um ráðningu hans.
Meirihluti og minnihluti í bæjarstjórn vann vel saman í þessu ferli og það er fagnaðarefni að ráðning bæjarstjóra var samþykkt samhljóða í dag.
Bæjarstjórn Grindavíkur vill þakka öllum umsækjendum fyrir áhugann sem þeir sýndu starfinu. Grindvíkingum óskum við til hamingju með nýjan bæjarstjóra og bjóðum Róbert og fjölskyldu hans velkomna til Grindavíkur.
Róbert Ragnarsson er 34 ára gamall stjórnmálafræðingur, kvæntur Valgerði Ágústsdóttur og eiga þau 3 syni. Hann hefur undanfarin 4 ár verið bæjarstjóri í Vogum, en áður var hann verkefnisstjóri í félagsmálaráðuneytinu. Róbert er að koma aftur til Grindavíkur eftir 10 ára fjarveru, en hann var ferðamála- og markaðsfulltrúi Grindavíkurbæjar um aldamótin.
Tillagan er samþykkt samhljóða
Nýráðinn bæjarstjóri óskaði eftir því að ávarpa fundinn og þakkaði hann það traust sem honum er sýnt með ráðningunni.
Afgreiðsla liðarins er samþykkt samhljóða
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:15
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
