1234. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn á skrifstofu bæjarstjóra, miðvikudaginn 21. júlí 2010 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Vilhjálmur Árnason (VÁ), Bryndís Gunnlaugsdóttir (BG), Kristín María Birgisdóttir (KMB) og Páll Valur Björnsson (PVB).
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, fjármálastjóri
Dagskrá:
1. 1006015 - Sameining grunnskóla í Grindavík
Bæjarráð hafnar því að greiða laun í uppsagnarfresti og biðlaun í eingreiðslu 1. ágúst. Jafnframt hafnar bæjarráð greiðslu flutningsstyrks. Hvað varðar 12 mánaða biðlaunarétt er óskað eftir gögnum sem styðja þá kröfu.
2. 1007067 - Tilraunalandið, vísindasýning fyrir börn.
Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.
3. 1007068 - Viðræðuslit Launanefndar sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.
Lagt fram.
4. 1007065 - Námskeið um lýðræði í sveitarfélögum 6. september nk.
Lagt fram.
5. 1007063 - Ósk um styrk.
Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.
6. 0811026 - Auðlindir í landi Grindavíkurbæjar
Lagt fram. Bæjarráð vonast eftir góðu samstarfi við HS Orku í komandi framtíð.
7. 1007064 - Ónæði vegna sparkvallar við grunnskólann
Bæjarráð felur tæknideild að koma með tillögur og kostnaðaráætlun og leggja fyrir bæjarráð.
8. 1007062 - Förgun Bláalónsvökva, brýnt úrlausnarverkefni.
Bæjarráð vísar erindinu til skipulags- og bygginganefndar.
9. 1007061 - Leitað eftir styrk til byggingar fyrir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur erlendum tungumálum.
Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.
10. 1007056 - Ósk um styrk vegna náms
Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.
11. 1007059 - Mismunun á aðstöðu - Mismunun deilda
Bréfið lagt fram. Bæjarráð þakkar ábendingar og vísar erindinu til íþrótta- og æskulýðsnefndar.
12. 1007057 - Ósk um að gengið verði frá lóðinni á bakvið Gerðavelli 17.
Tæknideild er falið að skoða frágang við innri enda Litluvalla. Bæjarráð hvetur eigendur Gerðavalla 17 og 19 að ganga frá lóð þannig að sómi sé að.
13. 1006050 - Bréf dags. 23.06.2010. Athugasemdir um ástand Túngötu 15-17
Fram kemur í greinargerð forstöðumanns tæknideildar að við flestu hefur verið brugðist.
Aðrar ábendingar munu verða hafðar til hliðsjónar við yfirfærslu málaflokksins til Grindavíkurbæjar um næstu áramót.
14. 1007055 - Átak vegna villikatta í Grindavík
Bæjarráð óskar eftir greinargerð frá forstöðumanni tæknideildar um hvernig best sé að haga eyðingu villikatta þannig að varanlegur árangur náist.
15. 1007020 - Þórkötlustaðanes- Hópsnes og niðursett brotajárn á hæsta punkti landsvæðis.
Leigusamningur við Síldarvinnsluna rennur út í október nk.
16. 1007053 - Boðun XXIV.landsþings Samband íslenskra sveitarfélaga.
Lagt fram. Fjármálastjóra falið að tilkynna fulltrúa Grindavíkurbæjar á landsþingið.
17. 0904007 - Endurskoðun aðalskipulags Grindavíkur
Lagt fram. Bæjarráð harmar að ríkið geti ekki staðið við fyrri samþykkt. Vísað til endurskoðunar á fjárhagsáætlun 2010.
18. 1005029 - Ósk um þátttöku í húsaleigu í Landsbanka
Bæjarráð samþykkir að styrkja Símenntun á Suðurnesjum tímabundið um 45.000 á mánuði vegna húsaleigu. Óskað er eftir viðræðum við Miðstöð símenntunar um varanlega lausn.
19. 1007051 - Fyrirspurn um eyðingu á mink í Grindavík
Grindavíkurbær er með samning um eyðingu á mink og ref við 3 aðila.
20. 1004032 - Reglugerð um skilti í Grindavíkurbæ
Vísað til umsagnar hjá skipulags- og byggingarnefnd og atvinnu- og ferðamálanefnd.
21. 1004030 - Gjaldskrá byggingaleyfis- og þjónustugjalda í Grindavíkurbæ
Vísað til skipulags- og bygginganefndar.
22. 1006067 - Beiðni um leigu á húsnæði
Húsnæði Grindavíkurbæjar á neðri hæð á Víkurbraut 62 er ekki laust eins og staðan er núna.
23. 0911086 - Biðskýli við Reykjanesbraut.
Tæknideild er falið að ljúka málinu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
