Náttúruvika - Gönguveislan hefst í Grindavík
Náttúruvika - Gönguveislan hefst í Grindavík

Nú er komið að því að Grindavík kemur sterkt inn í náttúruvikuna á Suðurnesjum því gönguveislan hefst í dag og stendur til mánudags. Í dag verður gengið með leiðsögn um gamla bæjarhlutann í Grindavík í 1-2 tíma og endað með söng við tjaldsvæði Grindavíkur. Dagskráin í dag er eftirfarandi:

Föstudagur 30. júlí
Sandgerðisbær - 09:00 - 17:00. Fræðasetrið.
Til sýnis skelja og kuðungasafn, lifandi sjávardýr, uppstoppaðir fuglar og margt fleira. Fjörulíf. Alla dagana geta gestir fengið búnað til að fara í fjöruferðir og kynnst fjölbreyttu lífríki fjörunnar.
Maðurinn í náttúrunni. Með listaverkinu "Óður til hafsins" minnir unga fólkið okkur á umgengni okkar við náttúruna. Til sýnis í anddyri Fræðasetursins.
Fuglar á Sandgerðistjörn. Fuglaskoðunarhús til afnota fyrir alla.
Nánari upplýsingar í afgreiðslu Fræðasetursins og í síma: 423 7551. Opnunartímar: Virka daga: 09:00 - 17:00. Helgar: 13:00 - 17:00.

Sandgerðisbær - kl.13:00 - 17:00. Háskólasetur Suðurnesja, Garðavegi 1 - kynning á starfsemi.
Halldór Pálmar Halldórsson, forstöðumaður Háskólasetursins kynnir starfsemina, m.a. rannsóknir á grjótkröbbum og hvernig kræklingur er notaður við rannsóknir á mengun. Nokkrir nýir landnemar við Íslandsstrendur verða til sýnis í sjóbúrum.

Grindavíkurbær - 11:00 - 18:00. Saltfisksetur Íslands.
Til sýnis uppstoppaðir fuglar auk hefðbundinnar saltfisksýningar safnsins og fallegs handverksmarkaðar.
Sveitarfélagið Garður - kl. 13:00. Bjargvættirnir Garðskagavitar.
Fræðsla og leiðsögn, Ásgeir Hjálmarsson, safnvörður. Mæting kl. 13:00 við Garðskagavita. Fræðslan er öllum ætluð, tekur um 2 tíma og er ókeypis.

Grindavíkurbær - kl. 20:00. Gönguferð.
Mæting við Saltfisksetrið, Hafnargötu 12a. Gengið verður með leiðsögn um gamla bæjarhlutann í Grindavík í 1-2 tíma. Gangan er í boði Grindavíkurbæjar og Saltfisksetursins. Endað með söng við tjaldsvæði Grindavíkur.

Nýlegar fréttir

fim. 9. feb. 2012    Starf aðstoðarleikskólastjóra við leikskólann Laut í Grindavík
fim. 9. feb. 2012    Samskiptadagar í Grunnskólanum
fim. 9. feb. 2012    Álagningarseðlar fasteignagjalda fyrir árið 2012
fim. 9. feb. 2012    Góðar gjafir Kvenfélags Grindavíkur
mið. 8. feb. 2012    Svavar Knútur á Bryggjunni
mið. 8. feb. 2012    Mikið um að vera í körfuboltanum
mið. 8. feb. 2012    Veiðarfæraþjónustan og Besa framúrskarandi fyrirtæki
mið. 8. feb. 2012    Þorrablót á Salthúsinu
mið. 8. feb. 2012    Þorrablót á Veitingastofunni Vör
þri. 7. feb. 2012    Námskeið í skyndihjálp í sundlauginni
þri. 7. feb. 2012    Hestadagur Brimfaxa á laugardaginn
þri. 7. feb. 2012    Afhentu plakat í tilefni dags leikskólans
þri. 7. feb. 2012    Viltu taka þátt í menningarvikunni? Ertu með ábendingar?
þri. 7. feb. 2012    Verkalýðsfélag Grindavíkur 75 ára - Afmæliskaffi á sunnudaginn
þri. 7. feb. 2012    Bullock valinn besti leikmaður 14. umferðar
þri. 7. feb. 2012    Framhaldsaðalfundi frestað um viku
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Hagnýtt saumanámskeið
mán. 6. feb. 2012    Opið hús hjá Þórkötlu
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Námskeið í svæðanuddi
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Fyrirlestur um SUSHI
mán. 6. feb. 2012    Finndu eldmóðinn - Spennandi námskeið í MSS í Grindavík
mán. 6. feb. 2012    Lasse Qvist semur líklega við Grindavík í vikunni
mán. 6. feb. 2012    Bókasafnið gefur út upplýsingabækling
mán. 6. feb. 2012    Dagur leikskólans
mán. 6. feb. 2012    Nýr vinnslubúnaður hjá Vísi