Að vanda verður ýmislegt um að vera í dag í náttúrvikunni á Suðurnesjum. Þar má nefna kynningu á einu viðamesta botndýrarannsóknaverkefni í heimi sem er í Sandgerði, kynning á háskólasetrinu í Sandgerði og verkefnum þar og áhugaverðar gönguferðir í Garðinum og Reykjanes. Dagskráin er eftirfarandi:
Miðvikudagur 28. júlí
Sandgerðisbær - kl. 09:00 - 17:00. Fræðasetrið.
Til sýnis skelja og kuðungasafn, lifandi sjávardýr, uppstoppaðir fuglar og margt fleira. Fjörulíf. Alla dagana geta gestir fengið búnað til að fara í fjöruferðir og kynnst fjölbreyttu lífríki fjörunnar.
Maðurinn í náttúrunni. Með listaverkinu "Óður til hafsins" minnir unga fólkið okkur á umgengni okkar við náttúruna. Til sýnis í anddyri Fræðasetursins.
Fuglar á Sandgerðistjörn. Fuglaskoðunarhús til afnota fyrir alla.
Nánari upplýsingar í afgreiðslu Fræðasetursins og í síma: 423 7551. Opnunartímar: Virka daga: 09:00 - 17:00. Helgar: 13:00 - 17:00.
Grindavíkurbær - 11:00 - 18:00. Saltfisksetur Íslands.
Til sýnis uppstoppaðir fuglar auk hefðbundinnar saltfisksýningar safnsins og fallegs handverksmarkaðar.
Sandgerðisbær - kl. 13:00 - 18:00. BioIce rannsóknarstöðin, Garðvegi 1 - opið hús.
Botndýr á Íslandsmiðum. Kynnist einu viðamesta botndýrarannsóknaverkefni í heimi. Furðuskepnur hafsins til sýnis.
Sandgerðisbær - kl.13:00 - 17:00. Háskólasetur Suðurnesja, Garðavegi 1 - kynning á starfsemi.
Halldór Pálmar Halldórsson, forstöðumaður Háskólasetursins kynnir starfsemina, m.a. rannsóknir á grjótkröbbum og hvernig kræklingur er notaður við rannsóknir á mengun. Nokkrir nýir landnemar við Íslandsstrendur verða til sýnis í sjóbúrum (einnig fimmtud. og föstud. kl. 13:00 - 17:00).
Sveitarfélagið Garður - kl. 11:00. Fjársjóðir í fjörunni.
Leiðsögumaður Kristjana Kjartansdóttir frá Bjarmalandi: Mæting kl. 11:00 við gamla Garðskagasvitann. Þátttakendur eru beðnir um að klæða sig eftir veðri og aðstæðum. Ferðin er öllum ætluð og er ókeypis.
Reykjanesbær - kl. 18:00 - Grasaferð.
Grasaferð með Ásdísi Rögnu grasalækni þar sem hún mun fræða um íslenskar lækningajurtir og áhrif þeirra til lækninga og heilsubóta. Mæting við Reykjaneshöll. Sameinast í bíla og keyrt á svæði rétt utan við bæinn þar sem er fjölbreytt flóra, ferðin tekur 1 klst. Allir velkomnir - enginn aðgangseyrir.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
