Bæjarráð nr. 1233

1233. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn  á skrifstofu bæjarstjóra, miðvikudaginn 7. júlí 2010 og hófst hann kl. 17:00


Fundinn sátu:
Guðmundur L. Pálsson (GLP), Bryndís Gunnlaugsdóttir (BG), Lovísa Hilmarsdóttir (LH) og Páll Valur Björnsson (PVB).

Fundargerð ritaði:  Jón Þórisson, fjármálastjóri

 

Dagskrá:

1.  1005029 - Ósk um þátttöku í húsaleigu í Landsbanka
 Til fundarins var mættur Ólafur Jón Arnbjörnsson og fór hann yfir forsögu málsins.
   
2.  1004028 - Erindi frá knattspyrnudeildinni.
 Til fundarins voru mættir forsvarsmenn knattspyrnudeildar. Bæjarráð samþykkir erindið og felur forstöðumanni tæknideildar að sækja um byggingaleyfi og fjármálastjóra að útbúa samning og leggja fyrir bæjarráð.
   
3.  0911066 - Yfirfærsla málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga
 Til fundarins var mættur félagsmálasjóri og fór hann yfir stöðu mála.
   
4.  1006015 - Sameining grunnskóla í Grindavík
 Tillaga
Lagt er til að stofnunin Hópsskóli verði lögð niður og öll starfsemi skólans verði færð undir Grunnskóla Grindavíkur og stjórn skólastjóra þess skóla. Áfram verði gert ráð fyrir því að yngstu bekkjardeildum hins sameinaða skóla verði kennt í húsnæði Hópsskóla. Tillagan gerir ekki ráð fyrir breytingum á högum núverandi starfrsfólks Hópsskóla öðrum en að staða skólastjóra verði lögð niður.
Skólastjóra og stjórnendum Grunnskóla Grindavíkur og Hópskóla í samráði við skólamálafulltrúa verði falið að undirbúa breytinguna með þeim hætti að sem minnst röskun verði fyrir nemendur og starfsmenn og starfsemin geti hafist með eðlilegum hætti í haust. Skólamálafulltrúa, í samráði við skólstjóra Grunnskóla Grindavíkur og fjármálastjóra, verði falið að ganga frá starfsmannamálum í samræmi við lög, kjarasamninga og ráðningarsamninga.
Fjármálastjóra falið að senda skólastjóra Hópsskóla uppsagnarbréf.
 
                          Tillagan er samþykkt samhljóða.
 
Bókun frá fulltrúum B- og D-lista

Fulltrúar B- og D-lista telja að með þessari aðgerð  megi ná fram heildstæðri stefnu í grunnskólamálum í Grindavík. Með einum stjórnanda er hægt að einfalda áætlunargerð sveitarfélagsins og skóla, auka yfirsýn yfir starfsmannahóp skólans og þar með líkur á að nýta starfskrafta hvers og eins betur. Einnig aukast möguleikar á skynsamlegri hagræðingu og skýrari stefnu með einum stjórnanda.
Með þessari aðgerð er hægt að auka sparnað innan skólakerfisins, en beinn sparnaður yrði um 7.700.000 kr. á ári. Þetta er aðeins beinn sparnaður en ekki er búið að reikna inn sparnað sem getur orðið til með samnýtingu starfsfólks og sameiginlegum innkaupum.
Ljóst er að leita þarf allra leiða til að skera niður í bæjarfélaginu og það er markmið meirihlutans að sá niðurskurður bitni sem minnst á grunnþjónustu til bæjarbúa.
  
Fulltrúar B- og D-lista vilja þakka Maggý Hrönn Hermannsdóttur fyrir velunnin störf í þágu Grindavíkur.
   
5.  1007029 - Aðstaða vegna félagsstarfs eldri borgara í Víðihlíð
 Bæjarráð tekur vel í erindið og vísar því til umsagnar hjá íþrótta- og æskulýðsnefnd og félagsmálaráði. Bæjarráð beinir því til nefndanna að hafa í huga eignaskiptasamning varðandi 1. hæð.
 
   
6.  1006034 - Styrkbeiðni frá sunddeild UMFG
 Bæjarráð samþykkir að styrkja sunddeild um 50.000 kr. vegna leigu á tímatökubúnaði.
   
7.  1007016 - Nefndir bæjarins
 Málin rædd.
   
8.  1004034 - Ósk um framkvæmdaleyfi
 Samþykkt með sömu fyrirvörum og hjá skipulags- og byggingarnefnd
   
9.  1006047 - Umsókn um byggingarleyfi Norðurvör 3
 Samþykkt með sömu fyrirvörum og hjá skipulags- og byggingarnefnd.
   
10.  1006046 - Umsókn um byggingarleyfi Vörðusund 4
 Samþykkt með sömu fyrirvörum og hjá skipulags- og byggingarnefnd.
   
11.  1006030 - Ósk um leyfi til uppsetningar á skjólvegg utan lóðar
 Samþykkt
   
12.  1006022 - Ósk um uppsetningu á parabóluloftneti
 Bæjarráð samþykkir erindið.
   
13.  1005051 - Ósk um flýtimeðferð um framkvæmdarleyfi fyrir borun
 Bæjarráð samþykkir erindið með sama fyrirvara og skipulags- og bygginganefnd.
   
14.  1006040 - Breyting á aðaðlskipulagi Hafnarfjarðar 2005-2025 - SV-línur
 Bæjaráð gerir ekki athugasemdir við aðalskipulagsbreytingar Hafnarfjarðarbæjar vegna suðvesturlínu ásamt umhverfisskýslu.
   
15.  0810019 - Breyting á deiluskipulagi iðnaðar-og orkuvinnslusvæðis á Reykjanesi
 Bæjarráð samþykktir erindið með sömu fyrirvörum og skipulags- og byggingarnefnd.
   
16.  1001062 - Ósk um breytingu á deiliskipulagi í Svartsengi vegna metanólvinnslu.
 Samþykkt
   
17.  1006054 - Ósk um umsögn vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Golfklúbb Grindavíkur
 Bæjarráð beinir því til forstöðumanns tæknisviðs að hefja vinnu við deiliskipulag svæðisins.
   
18.  1007003 - Nýting fasteignaskattsálagningar árið 2010
 Lagt fram.
   
19.  1006010 - Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar
 Nafnalisti umsækjenda lagður fram. Umsækjendur eru 51.
   
20.  1007001 - Ósk um kaup á íbúð á Leynisbraut 13c
 Bæjarráð hafnar erindinu.
   
21.  1006085 - Ársskýrsla Landgræðslunnar fyrir árið 2009
 Lagt fram.
   
22.  1006084 - Úthlutun Jöfnunarsjóðsframlags 2010 vegna hækkunar tryggingagjalds
 Lagt fram. Fram kemur að í hlut Grindavíkurbæjar kemur 11.631.360 kr. Vísað til endurskoðunar á fjárhagsáætlun 2010.
   
23.  1006082 - Aðalfundur Suðurlinda 2010
 Lagt fram.
Fulltrúar í stjórn Suðurlinda fyrir hönd Grindavíkurbæjar eru:
Páll Jóhann Pálsson og Kristín María Birgisdóttir og til vara Guðmundur Pálsson og Páll Valur Björnsson
   
24.  1006081 - Ágóðahlutur 2010 til aðildarsveitarfélaga EBÍ
 Lagt fram
   
25.  1006080 - Skýrsla starfshóps samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um heildarendurskoðun á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
 Lagt fram.
   
26.  1006079 - Beiðni um afnot af bílastæði íþróttahúss vegna góðaksturskeppni 12. ágúst nk.
 Bæjarráð tekur vel í erindið og felur fjármálastjóra afgreiðslu þess.
   
27.  1006065 - Beiðni um styrk vegna alþjóðlegrar ungmennaráðstefnu í Litháen
 Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.
   
28.  1006059 - Úthlutun úr námsgagnasjóði 2010.
 Lagt fram.
   
29.  1006052 - Beiðni um umsögn um frumvarp til laga um verndar- og nýtingaráætlun virkjunar fallvatna og háhitasvæði 660. mál
 Bæjarráð felur forstöðumanni tæknideildar og fjármálastjóra að fara yfir frumvarpið og skila athugasemdum til bæjarráðs.
   
30.  1006050 - Bréf dags. 23.06.2010. Athugasemdir um ástand Túngötu 15-17
 Bæjarráð óskar eftir úttekt frá tæknideild á ástandi hússins fyrir næsta fund bæjarráðs.
 
Fjármálastjóra er falið að svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum.
   
31.  1006048 - Breyting á opnunartíma sundlaugar og íþróttahúss
 Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar hjá íþrótta- og æskulýðsnefnd.
   
32.  1006049 - Beiðni um viðbótarfjárveitingu á fjárhagsáætlun 2010
 Bæjarráð samþykkir fjárveitinguna og vísar henni til endurskoðunar á fjárhagsáætlun.
   
33.  1006033 - Fundur í Iðnaðarráðuneyti 23. júní 2010 kl. 10:00
 Lagt fram.
   
34.  1006083 - 394. fundur stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja.
 Lagt fram.
   
35.  1006012F - Skipulags- og byggingarnefnd Grindavíkur - 516
 Lagt fram
   
36.  1006011F - Fræðslu- og uppeldisnefnd Grindavíkur - 60
 Lagt fram
   
37.  1006013F - Fræðslu- og uppeldisnefnd Grindavíkur - 61
 Lagt fram
   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:50