Fræðslu- og uppeldisnefnd nr. 61

Fundur í fræðslu- og uppeldisnefnd var haldinn hinn 28. júní 2010 á bæjarskrifstofu kl. 17:00.

Mætt: Klara Halldórsdóttir, Eva Björg Sigurðardóttir, Sigríður Anna Ólafsdóttir, Þórunn Róbertsdóttir og Einar Sveinn Jónsson frá nefndinni. Fulltr. skólastjórnenda eru Páll Leó Jónsson og Maggý Hrönn Hermannsdóttir. Áheyrnarfulltrúi foreldra er Hrafnhildur Harpa Skúladóttir. Áheyrnarfulltrúi kennara er Þuríður Gísladóttir. Nökkvi Már Jónsson skólamálafulltrúi situr fundinn og ritar fundargerð.

1. Mál nr. 1006015 - Sameining grunnskóla í Grindavík

Fyrirliggjandi gögn: 1) Bókun bæjarstjórnar frá 16. júní sl., 2) Yfirlit yfir leiðir til sameiningar grunnskóla, 3) bókun fræðslu- og uppeldisnefndar frá 22. júní sl., 4) umsögn skólaráðs Hópsskóla, dags. 25. júní sl., ásamt athugasemdum fulltr. starfsmanna, 5) umsögn skólastjóra Hópsskóla, dags. 25. júní sl., 6) umsögn skólastjóra Grunnskóla Grindavíkur, dags. 28. júní sl., 7) umsögn skólaráðs Grunnskóla Grindavíkur, dags. 28. júní sl., 8) minnisblað fjármálastjóra Grindavíkurbæjar um hugsanlegan sparnað vegna sameiningar grunnskóla.

Lagt fram á fundinum: Samantekt meirihluta fræðslu- og uppeldisnefndar vegna sameiningar grunnskóla í Grindavík.

Meirihluti B og D-lista bera upp eftirgreinda tillögu:

Lagt er til að stofnunin Hópsskóli verði lögð niður og öll starfsemi skólans verði færð undir Grunnskóla Grindavíkur og stjórn skólastjóra þess skóla. Áfram verði gert ráð fyrir því að yngstu bekkjardeildunum hins sameinaða skóla verði kennt í húsnæði Hópsskóla. Tillagan gerir ekki ráð fyrir breytingum á högum núverandi starfsfólks Hópsskóla öðrum en þeim að staða skólastjóra verði lögð niður.
Skólastjóra og stjórnendum Grunnskóla Grindavíkur og Hópsskóla, í samráði við skólamálafulltrúa, verði falið að undirbúa breytinguna með þeim hætti að sem minnst röskun verði fyrir nemendur og starfsmenn og starfsemin geti hafist með eðlilegum hætti í haust. Skólamálafulltrúa í samráði við skólastjóra Grunnskóla Grindavíkur og fjármálastjóra, verði falið að ganga frá starfsmannamálum í samræmi við lög, kjarasamninga og ráðningarsamninga.
Fræðslu- og uppeldisnefnd Grindavíkur treystir því mjög svo hæfa starfsfólki beggja skóla til að láta sameininguna ganga sem best með hag nemenda og starfsfólks að leiðarljósi og tryggja samfellu í starfi skólanna.

Tillagan er samþykkt með þremur atkvæðum gegn tveimur.

Bókun G og S-lista:

G og S-listi harma þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið í jafn mikilvægu máli og sameining grunnskólanna er. Það er einlæg von okkar að í framtíðinni verði slíkum breytingum gefin sanngjarn tími þar sem allir hagsmunaaðilar eru hafðir með í ráðum frá upphafi. Þá má líka hafa í huga hvort fyrirhugaðar breytingar með tilheyrandi ólgu og óánægju séu metnar til fjár. Það er að okkar mati ótækt að hugsanlegur sparnaður vegna breytinganna hafi ekki legið fyrir fyrr en tveimru klst. fyrir lokaákvörðun málsins. Hann hefði að sjálfsögðu átt að liggja fyrir um leið og B og D-listi settu málið í stefnuskrá sína fyrir kosningar.
G og S-listi vilja að lokum þakka Maggý Hrönn fyrir vel unnin störf frá því í haust og óskum við henni velfarnaðar.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:40.

Klara Halldórsdóttir
Eva Björg Sigurðardóttir
Þórunn Róbertsdóttir
Einar Sveinn Jónsson
Sigríður Anna Ólafsdóttir
Páll Leó Jónsson
Maggý Hrönn Hermannsdóttir
Hrafnhildur Harpa Skúladóttir
Þuríður Gísladóttir