Gæsluvöllurinn við Hraunbraut í Grindavík verður opnaður næsta mánudag þegar leikskólarnir verða komnir í sumarfrí. Gæsluvöllurinn er fyrir 2 til 6 ára börn, opið er alla virka daga frá kl. 12:45 - 17:15.
Meðan barn er að venjast aðstæðum er foreldri skylt að dvelja með barninu og að barnið sé ekki skilið eftir nema í klukkutíma í senn fyrstu skiptin. Gæslugjald er 200 kr. fyrir hverja vistun. Veittur er 50% systkinaafsláttur. Nánari upplýsingar:
GÆSLUVÖLLUR GRINDAVÍKUR
Gæsluvöllur við Hraunbraut er ætlaður börnum frá 2 ára til 6 ára.
Foreldrar, vinsamlegast athugið:
- Gæsluvellir eru nær eingöngu til útileikja. Nesti er þó hægt að borða innandyra.
- Ofbjóðið ekki barninu með of langri dvöl á vellinum. Það sem eitt barn þolir kann að verða öðru barni um megn.
- Vinsamlegast látið starfsmenn gæsluvallarins vita um þarfir barnanna. Gott samstarf á milli starfsmanna og foreldra er mikilvægt og eykur vellíðan barnsins á gæsluvellinum.
- Hafið hugfast að gæsluvöllur getur engan vegin komið í stað leiksskóla.
- Ekki er ætlast til að starfsmenn gæsluvallarins skipti um bleijur á börnunum. Starfsmenn munu láta foreldra vita ef vart verður við að börn séu blaut.
Reglur gæsluvallarins:
- Gæsluvöllurinn er opinn alla virka daga frá kl. 12:45 - 17:15.
- Séð er fyrir gæslu barna á aldrinum 2 - 6 ára.
- Skylt er að láta fylgja börnunum milli gæsluvallar og heimilis og sækja þau á réttum tíma.
- Engin ábyrgð er tekin á einkaleikföngum.
- Skylt er að tilkynna starfsmönnum, ef enginn er heima meðan barnið dvelur á gæsluvellinum, og skal þá jafnframt bent á annan aðila, sem hafa má samband við ef eitthvað kemur fyrir barnið.
- Hafið barnið vel búið. Látið fylgja með aukavettlinga, og önnur hlífðarföt. Gætið þess að hafa fötin vel merkt. Hafið einnig allt sem fylgir barninu, s.s. nestisbox og töskur vel merkt.
ATH - að venjast aðstæðum.
Meðan barn er að venjast aðstæðum er foreldri skylt að dvelja með barninu og að barnið sé ekki skilið eftir nema í klukkutíma í senn fyrstu skiptin. Nauðsynlegt er að gefa barninu nægan tíma til að venjast nýju umhverfi og einnig til að kynnast starfsfólki. Síðan er hægt að lengja dvalartímann. Ef þessu er framfylgt, mun barnið fyllast öryggiskennd á gæsluvellinum og verða ánægt til frambúðar.
Gæslugjald er 200 kr. fyrir hverja vistun. Veittur er 50% systkinaafsláttur.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
